Sport

Flottu heimsmeistaramóti lokið

Íslenski hópurinn að keppni lokinni í Jean Parc Drapeau sundlauginni í Montréal. Efri röð frá vinstri: Kristín Guðmundsdóttir landsliðsþjálfari, Aníta Ósk Hrafnsdóttir liðsstjóri, Kolbrún Alda Stefánsdóttir, Jón Margeir Sverrisson. Neðri röð frá vinstri: Thelma Björg Björnsdóttir og Hjörtur Már Ingvarsson.
Íslenski hópurinn að keppni lokinni í Jean Parc Drapeau sundlauginni í Montréal. Efri röð frá vinstri: Kristín Guðmundsdóttir landsliðsþjálfari, Aníta Ósk Hrafnsdóttir liðsstjóri, Kolbrún Alda Stefánsdóttir, Jón Margeir Sverrisson. Neðri röð frá vinstri: Thelma Björg Björnsdóttir og Hjörtur Már Ingvarsson. Mynd/íþróttasamband fatlaðra
Heimsmeistaramóti fatlaðra í sundi er lokið en mótið fór fram í Montréal í Kanada. Jón Margeir Sverrisson lokaði hringnum fyrir íslensku sveitina þegar hann hafnaði í 5. sæti á nýju og glæsilegu Íslandsmeti í 200m fjórsundi S14 karla.

Í úrslitum þetta lokakvöld synti Hjörtur Már Ingvarsson í 100m skriðsundi í flokki S6 og hafnaði í 8. sæti á tímanum 1:34,38 mín. Thelma Björg Björnsdóttir var næst á svið í 100m skriðsundi S6 kvenna og hafnaði einnig í 8. sæti.

Þau leiðu mistök urðu á framkvæmd sundsins að engir tímar voru skráðir heldur skipað í sæti eftir þeirri röð sem sundmenn komu í bakkann.

Forsvarsmenn þeirra þjóða sem áttu sundmenn í þessu úrslitasundi, þar á meðal Ísland, voru beðnir um að kjósa hvort synda ætti greinina aftur eða láta hana standa og raða eftir sætum. Það varð ofan á að raða eftir sætum hvenær sundmennirnir komu í bakkann og því fæst enginn skráður tími á þetta sund.

Nokkur töf varð á mótinu fyrir vikið en það kom loks að 200m fjórsundi S14 karla þar sem Jón Margeir Sverrisson bætti Íslandsmetið sitt til muna sem hann hafði sett í undanrásum fyrr um morguninn.

Jón var í bullandi baráttu um verðlaun en varð að láta sér lynda 5. sætið á tímanum 2.18,79 mín en fjórir sundmenn í sætum 2-5 syntu allir á 2.18,30 mín - 2.18,79 mín.

Hollendingurinn Marc Evers hafði sigur á 2.12,37 mín. og ber höfuð og herðar yfir aðra í greininni. Jón Margeir var skráður inn í 200m fjórsund á 2.23,72 mín. og því um gríðarlega bætingu að ræða eða um fimm sekúndur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×