Innlent

Fer á Evrópumeistaramótið í súlufimi

Hrund Þórsdóttir skrifar
Umgjörð Evrópumeistaramótsins verður hin glæsilegasta og þar verða keppendur af báðum kynjum, frá sex ára aldri og upp úr. Unnið er að því að koma á fót Íslandsmeistaramóti í íþróttinni en á meðan það er ekki til staðar geta allir iðkendur sótt um að komast á Evrópumeistaramótið. Í þetta sinn þótti Ásta bera af. Hún æfði áður jazzballett og fimleika en segir langt síðan. „Ég hef æft í eitt ár og þrjá mánuði. Árangurinn er ótrúlegur, ég get eiginlega ekki lýst honum. Ég gat ekki neitt þegar ég byrjaði. Ég gat varla snúið mér einn hring á súlunni án þess að detta í gólfið,“ segir hún og Sólveig Steinunn Pálsdóttir, sem er einn af eigendum Pole sport og þjálfuru Ástu, segir hana fara í ótrúlegustu stöður og vera fljóta að læra.

Sólveig hefur barist fyrir því að kynna íþróttina fyrir almenningi og segir þátttöku í erlendum keppnum stórt skref.

Finnst ykkur viðhorf fólks gagnvart þessari íþrótt vera að breytast?

„Smátt og smátt, já, alveg klárlega,“ segir Ásta. „Bara með hverjum deginum. Það er alltaf einn og einn sem sér hvað við erum að gera og hugsar, já, þær eru ekki að gera það sem ég hélt þær væru að gera,“ tekur Sólveig undir.

Ásta kveðst stundum hafa orðið vör við fordóma gagnvart íþróttinni. „Það svona kemur aðeins af og til, en oftast þegar fólk er búið að sjá mig á súlunni þá hættir það við,“ segir hún.

Ásta æfir tíu tíma á viku og það getur tekið á. „Þetta er rosalega erfitt. Ég er yfirleitt uppgefin og öll í marblettum. En það er þess virði,“ segir hún brosandi.

Hægt verður að fylgjast með keppninni á síðunni epsu.eu. „Ég er ekki að fara til að sigra, ég er bara ótrúlega stolt af mér að hafa komist inn á mótið og ætla að gera mitt allra besta,“ segir Ásta að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×