Geislafræðingar fá allt að 15% launahækkun Heimir Már Pétursson skrifar 1. ágúst 2013 13:16 Frá fundinum í morgun.
Óvíst er hversu margir geislafræðingar snúa aftur til starfa eftir að samkomulag náðist í deilu þeirra í gærkvöldi. Formaður Félags geislafræðinga er sátt við samkomulagið og segir það gefa félagsmönnum allt að 15 prósenta launahækkun. Geislafræðingar komu saman til fundar í morgun þar sem Katrín Sigurðardóttir formaður félags þeirra kynnti þeim samkomulag sem náðist við Landsspítalann undir miðnætti síðast liðna nótt, en uppsagnir um fjörtíu geilsafræðinga tóku gildi um miðnætti. Katrín segir að náðst hafi árangur varðandi alla þá þætti sem félagið setti fram í kröfum sínum, þótt auðvitað hafi ekki allt náðst fram sem upphaflega var lagt upp með. Hver og einn geislafræðingur þarf að draga uppsögn sína til baka ef hann sættir sig við niðurstöðuna en ekki liggur fyrir á þessari stundu hversu margir þeirra gera það. „Ég bara veit það ekki. Það er búið að vera gríðarlegt álag á fólki síðustu þrjá mánuði. Og það er einhvern veginn svo mikil reiði og óánægja að ég bara veit það ekki,“ segir Katrín. En fólki standi til boða að draga uppsagnir sínar til baka. Katrín segist vona að samkomulagið sé nógu gott til að fólk skipti um skoðun, því spítalinn þurfi á þessu fólki að halda. „Við erum að fá inn hluti sem gera það að verkum að sumir einstaklingar hækka meira en aðrir. En allir hafa á endanum möguleika á að vinna sig þangað á ekki svo löngum tíma,“ segir Katrín. Með öllum breytingum hækki launin um meira en tveggja stafa tölu. Sérhæfing og sérþekking verði metin meira og vaktakerfi breytt þannig að meira fáist greitt fyrir dagvinnuna en áður og jafnlaunahækkunin komi einnig þarna inn. Spítalinn muni einnig hagnast á þessum samningi þar sem vinnuálag verði minna og þar með dragi úr veikindum. Katrín segir erfitt að meta meðaltalshækkun launa í samningnum, þar sem skoða verði hvern og einn starfsmann út frá menntun, starfsaldri og reynslu. En er hækkunin upp í allt að 12 til 15% hjá þeim sem fá mest út úr samningnum? „Já, já, ég get alveg sagt það,“ svarar Katrín.Allt upp í 15 prósent?„Ég myndi segja það. Við erum ekki alveg búin að reikna þetta niður stigann, en þetta er góð hækkun fyrir suma,“ segir hún. Þá geti aðrir unnið sig hraðar upp launastigann en áður. Hún vonar að sem flestir snúi aftur til starfa. „Já, ég vona það. Ég hefði ekki viljað skrifa undir neitt að svo komnu máli ef ég hefði ekki talið að það væri eitthvað þarna inni sem væri geislafræðingum verulega í hag og myndi geta breytt þeirra afstöðu,“ segir formaður Félags geislafræðinga.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Fleiri fréttir Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sjá meira