Engin gengisfelling á hundraðkallinum 2. ágúst 2013 07:00 Prófesorinn slakar hér á í garðinum en hann er þó þekktur fyrir allt annað og meira en að taka því rólega.
Þeir sem fylgjast með knattspyrnu þekkja það vel að í þeim harðneskjulega heima er farið að slá í menn þegar þeir nálgast þriðja áratuginn. Ef meiðsli bætast síðan ofan á er næstum öll nótt úti. En því er öðruvísi háttað í langhlaupunum og sérstaklega þegar Ágúst nokkur Kvaran á í hlut. Ágúst er sextíu og eins ár og var að keppa um síðustu helgi í 81 kílómetra fjallahlaupi. Svokölluðu Hengilshlaupi. Lenti hann í þriðja sæti en mest þykir honum um að getað hlaupið að krafti á ný en hann er nýlega risinn upp úr erfiðum og langvarandi meiðslum. Ágúst er fyrsti hundraðkallinn en eins og hlaupagikkir þekkja eru þeir kallaðir hundraðkallar sem hlaupið hafa hundrað kílómetra hlaup. Ágúst reið á vaðið árið 1999 en síðan þá hafa fimmtíu og einn maður náð slíkum áfanga. Ekki eru það einungis karlmenn í hundraðkallafélaginu því þeirra á meðal er meðal annarra kvenna Elísabet Margeirsdóttir en hún vann Hengilshlaupið um síðustu helgi. En Ágúst ætlar ekki að setjast í helgan stein eftir 81 kílómetrana. „Nú stefni ég á að hlaupa hundrað mílna hlaup á Grikklandi í haust," segir hann. „Það eru rúmlega hundrað og sextíu kílómetrar. Þetta er mjög erfið keppni því hlaupið verður um fjalllendi um grýttar slóðir. En ég er nú nokkuð viss um að ég komist þetta en það er ekki nóg, menn verða að klára hlaupið innan fjörutíu og tveggja klukkustunda." Mörgum þætti eflaust nóg um því Ágúst fótbrotnaði í hjólaslysi í Sviss á sextugsafmæli sínu fyrir einu ári. Þar að auki hefur hann rifið liðþófa á báðum hnjám. „Jú, maður var stundum hálf smeykur um að þetta væri búið en nú kláraði ég þetta hlaup um helgina og þau héldu, ég fann ekki fyrir neinum óþægindum," segir hann. Þeir sem vilja slá Ágústi við hafa aldeilis verk að vinna því afreksskráin en löng og fær menn á besta aldri og í fantaformi til að kikna. Til dæmis fór hann árið 2009 með bak- og kviðpokann sinn hlaupandi Kjalveg á fjórum dögum sem eru um 175 kílómetrar og sama ár hljóp hann 200 kílómetra eyðimerkurhlaup í Sahara. Ferðalangar víða um land skula því ekki láta sig bregða ef þeir sjá hundraðkall að hita upp fyrir Grikklandshlaupið mikla.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Fleiri fréttir Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sjá meira