Tveir Íslendingar fengu tíu ára dóm í dópmáli í Danmörku Þorgils Jónsson og Fríða Garðarsdóttir skrifar 6. ágúst 2013 10:08 Tveir Íslendingar voru, fyrir héraðsdómi í Kaupmannahöfn í morgun, dæmdir í tíu ára fangelsi fyrir aðild að stóru fíkniefnamáli. Mynd/domstol.dk
Tveir Íslendingar voru í morgun dæmdir í tíu ára fangelsi í Danmörku fyrir aðild að stóru fíkniefnamáli. Mennirnir tveir, Heimir Sigurðsson og Sturla Þórhallsson, höfðu játað að hafa tekið þátt í smygli á 33 kílóum að amfetamíni frá Hollandi til Danmerkur. Heimi var gefið að sök að hafa farið í tvær ferðir til Hollands til að grennslast fyrir um hvort tollgæsla væri við landamærin. Sturla flutti hins vegar 27 kíló af amfetamíni til Danmerkur árið 2011, en hann hlaut átta ára dóm fyrir innfluting á fimm kílóum af amfetamíni frá Bretlandi. Dómurinn nú er tveggja ára viðbót við þann dóm og segir í frétt Jótlandspóstsins að báðir hafi ákveðið að una dómnum. Fjölmargir eru ákærðir í málinu, sem snýst um innflutning á um sjötíu kílóum af amfetamíni á árunum 2011 og 2012. Guðmundur Ingi Þóroddsson, sem talinn er standa á bak við smylglið, var dæmdur í tólf ára fangelsi í júní fyrir sinn þátt í málinu, en fyrir dómi í gær kom fram að dómurinn yfir honum hafi verið mildaður um tvö ár vegna þess hve hann var samvinnuþýður við rannsókn málsins. Hann sagði meðal annars til annarra í málinu. Dómsmeðferð í málinu mun halda áfram þar sem sjö sakborningar halda enn fram sakleysi sínu í málinu. Áætlað er að dómar muni ekki falla í þeim málum fyrr en í lok september.
Mest lesið Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veður Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Erlent Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Innlent Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Innlent Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Innlent Fundu kannabisplöntur við húsleit Innlent Fleiri fréttir Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Mennirnir enn í haldi lögreglu Staðan á Alþingi og refsilaus vændiskaup Leggja til að veiðigjaldið verði innleitt í skrefum Hvaðan kemur „kjarnorkuákvæðið“? Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Einn handtekinn eftir stunguárás Sjá meira