Innlent

Haglabyssur og heimatilbúnar sprengjur líklegustu hryðjuverkavopnin

Kristján Hjálmarsson skrifar
Ef hryðjuverk yrðu framin á Íslandi yrðu eggvopn, haglabyssur, rifflar og heimatilbúnar sprengjur sennilega þau vopn sem yrðu notuð til verksins.
Ef hryðjuverk yrðu framin á Íslandi yrðu eggvopn, haglabyssur, rifflar og heimatilbúnar sprengjur sennilega þau vopn sem yrðu notuð til verksins. Mynd/Úr safni
Ef hryðjuverk yrðu framin á Íslandi yrðu eggvopn, haglabyssur, rifflar og heimatilbúnar sprengjur sennilega þau vopn sem yrðu notuð til verksins. Lítil hætta er þó talin á hryðjuverkjum á Íslandi og ekki er talin sérstök ástæða til að auka viðbúnað lögreglu vegna þeirra. Þetta kemur fram í skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra á skipulagðri glæpastarfsemi og hættu á hryðjuverkjum.

Greiningardeildin telur að geta til að fremja og skipuleggja flókin hryðjuverk sem krefjast mikils undirbúnings og samstarfs margra aðila hér á landi sé takmörkuð. Ekki sé fyrir hendi „geta til að framkvæma hryðjuverk með notkun gereyðingarvopna þ.e. efna-, sýkla- , geisla- og kjarnorkuvopna á Íslandi,“ að því er segir í skýrslunni.

Niðurstaða svokallaðs „ógnarmats“ greiningardeildar í júlí í ár er að hætta á hryðjuverkum sé lágt. Matið byggist á því að ekki liggi fyrir upplýsingar af neinu tagi um að verið sé að skipuleggja eða undirbúa hryðjuverkaaðgerðir gegn skotmörkum eða viðburðum hérlendis.

Takmarkaðar upplýsingar

Í skýrslunni er þó tekið fram að lögreglan búi ekki yfir sambærilegum forvirkum rannsóknarheimildum og tíðast á Norðurlöndum. „Möguleikar lögreglunnar á Íslandi til þess að fyrirbyggja hryðjuverk eru því ekki þeir sömu og á hinum Norðurlöndunum. Þessu fylgir einnig að íslenska lögreglan hefur takmarkaðar upplýsingar um mögulega ógn eða hættulega einstaklinga sem kunna að fremja hryðjuverk. Það hefur ennfremur þær afleiðingar að óvissuþátturinn í áhættu greiningum varðandi málaflokkinn er meiri en hjá nágrannþjóðum okkar,“ að því er segir í skýrslunni.

Skýrsluna má lesa í heild sinni hér.


Tengdar fréttir

Erlendir glæpahópar skipulagðari en innlendir

Flest bendir til að erlendir glæpahópar á Íslandi séu skipulagðari en innlendir, að því er segir í nýrri skýrslu sem greiningardeild ríkislögreglustjóra vann um skipulagða glæpastarfsemi og hættu á hryðjuverkum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×