Ætla að gera við vélina hér á landi Boði Logason skrifar 24. júlí 2013 12:46 „Það voru ansi margir sem komu að verkinu, ég myndi giska á að þetta hafi verið í kringum 50 til 60 manns.“
Framleiðandi og eigandi flugvélarinnar sem hlekktist á við lendingu á Keflavíkurflugvelli ætlar að gera við flugvélina hér á landi og fljúga henni til Rússlands.Um sextíu manns tóku þátt í því að koma þotunni frá flugbrautarendanum í gærkvöldi. Óhappið varð á flugvellinum á sunnudagsmorgun þegar hjól vélarinnar fóru ekki niður fyrir lendingu og þurfti flugstjórinn því að magalenda henni og rann hún til á brautinni. Talsverðar skemmdir urðu á henni, meðal annars skemmdust báðir hreyflarnir mikið. Fimm voru um borð og sluppu þeir án alvarlegra meiðsla. Ragnar Guðmundsson, stjórnandi rannsóknarinnar á flugslysinu, segir að tekist hafi að koma vélinni í stæði á Keflavíkurflugvelli seint í gærkvöldi. „Það voru ansi margir sem komu að verkinu, ég myndi giska á að þetta hafi verið í kringum 50 til 60 manns,“ segir hann. Tveimur púðum, sem slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli hefur til afnota, var komið undir báða vængina. Þá hýfðu tveir stórir kranar vélina upp að framan og aftan. Því næst var rafmagni komið á vélina og hjólin sett niður. Ragnar segir að lítil hætta hafi verið á ferðum, enda hafi eldsneytinu verið tappað af vélinni í fyrradag. „Næstu skref eru þau að í dag verður vélin skoðuð betur því nú höfum við aðgang að neðri hluta vélarinnar. Hún verður skoðuð af rannsóknaraðilum, líka rússneskum, tryggingaraðila sem mun grófmeta tjónið. Svo fær framleiðandinn leyfi til að koma að vélinni og meta skemmdir, svo hann getið ákveðið hvað hann ætlar að gera í framhaldinu.“ Ragnar segir að vélin sé töluvert skemmd. „Hún er mjög mikið skemmd, hreyflarnir báðir eru mjög illa farnir. Það eru líka miklar skemmdir á afturhluta búks vélarinnar.“ Í yfirlýsingu sem framleiðandi vélarinnar gaf frá sér á mánudag, segir að vélin hafi verið við æfingar í hliðarvindi og hún hafi einungis flogið á einum hreyfli þegar slysið varð. Þá segir einnig í yfirlýsingunni að gert sé ráð fyrir því að gera við vélina hér á landi áður en henni verði flogið á brott. „Ég hef ekki fengið þetta endanlega staðfest frá þeim, en þetta er það plan sem ég heyrði af og þeira vinna út frá. En eins og ég segi þá á enn eftir að meta skemmdirnar,“ segir Ragnar að lokum.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Fleiri fréttir Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sjá meira