Útvarpsgjald rukkað þótt útgáfan sé löngu hætt Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 25. júlí 2013 21:00 Arnar stóð að útgáfu Víkurblaðsins á árinum 1979 til 1999. samsett mynd
Arnar Björnsson íþróttafréttamaður fékk símtal í morgun þess efnis að Víkurblaðið sf. á Húsavík skuldaði 96 þúsund krónur í útvarpsgjald, þrátt fyrir að starfsemi fyrirtækisins hefði verið löngu hætt. „Þetta blað hætti að koma út sjö áum áður en nýju útvarpslögin tóku gildi árið 2007,“ segir Arnar, en hann stóð að útgáfu blaðsins ásamt tveimur öðrum frá árinu 1979 til aldamóta. Hann segir að á vefsíðu ríkisskattstjóra sjáist að virðisaukaskattsnúmerinu hafi verið lokað 31. desember 1999. „Við vorum svo grænir og héldum að það hefði átt að duga. En nei, okkur láðist að slíta félaginu formlega og því er það ennþá tæknilega til staðar og virkt. Frá og með þessum lögum 2007 hef ég átt að greiða útvarpsgjald á hverju ári, en ég hef aldrei fengið neinar upplýsingar um að ég skuldaði neitt fyrr en nú.“ Arnar segir þetta dæmi um „bullskattlagningu“ sem hafi „ekkert með heilbrigða skynsemi að gera“, en að sögn hans voru embættismenn hjá ríkisskattstjóra afar ljúfir þegar hann hringdi vegna málsins. „Samkvæmt því sem þeir sögðu þá eru einhver fordæmi, og einhverjir dómar hafa fallið í sambærilegum málum. Þau hafa öll verið sækjendum í óhag og ég sé því ekki annan kost í stöðunni en að greiða þetta. En að vera að rukka fyrirtæki sem er búið að vera dautt í þrettán ár, þar af sex eða sjö ár áður en þessi lög taka gildi, er auðvitað alveg galið.“
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Fleiri fréttir Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Sjá meira