Vill virkari aðgerðir gegn mávinum á tjörninni Hödd Vilhjálmsdóttir skrifar 27. júlí 2013 20:24
Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, vill að ráðist sé í aðgerðir gegn mávum á tjörninni. Margar fjölskyldur leggja leið sína niður að Reykjavíkurtjörn til að gefa öndunum brauð og er það oft skemmtileg stund í lífi marga barna. Mávarnir eiga það þó til að varpa skugga á skemmtunina og hefur fréttastofa heimildir fyrir því að börn hafa farið skælandi frá tjörninni eftir að þurft að horfa upp á litla andarunga hverfa inn í kjaft mávanna. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks vill losna við mávana af tjörninni og lagði fram tillögu þess efnis á borgarráðsfundi í gær. „Það hafa verið aðgerðir í gangi áratugum saman en það hefur verið dregið úr þeim á undanförnum árum og til dæmis eftir að nýr meirihluti tók við þá var hætt að stugga við mávi hér við tjörnina með virkum hætti. Það var til dæmis gert með því að fæla þá burt með skotvopnum. Ég veit líka að það hefur dregið úr starfsemi sem fólst í því að fara út í eyjarnar á sundunum og spilla fyrir mávarvarpi. Að minni hyggju þarf að herða þessar aðgerðir að nýju, flæma mávinn frá tjörninni og setja upp skilti þar sem fólk er hvatt til að gefa ekki mávinum,“ segir Kjartan. Aðspurður að því hvort þetta sé ekki misrétti gagnvart mávunum, af hverju endur ættu frekar að njóta sín á tjörninni heldur en mávurinn segir Kjartan að borgaryfirvöld vilji heldur hafa huggulegan andapoll. „Frekar en að þetta breytist í eitthvað athafnasvæði mávana.“
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Fleiri fréttir Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sjá meira