Innlent

Banaslys á Langjökli

Tildrög slyssins eru í rannsókn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi.
Tildrög slyssins eru í rannsókn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi.
Rúmlega sextugur ferðamaður frá Taiwan lést þegar hann missti stjórn á vélsleða sem hann ók á Langjökli um hádegisbil í dag.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að slysið hafi verið tilkynnt upp úr hádegi og var maðurinn úrskurðaður látinn af lækni í áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar hún lenti á vettvangi um klukkutíma síðar.

Eiginkona mannsins var farþegi á sleðanum og slasaðist hún einnig en meiðsl hennar eru ekki talin alvarleg, að sögn lögreglu.

Tildrög slyssins eru í rannsókn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi og eru lögreglumenn þaðan enn þá á vettvangi. Sleðinn verður fluttur í bíltæknirannsóknarsetur Lögreglunnar á Selfossi til rannsóknar.

Lögreglan segir að frekari upplýsingar verði ekki hægt að gefa í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×