Lífið

Skarsgård á Laugaveginum í "túristalegri útivistarpeysu“

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
mynd/getty
Sænski leikarinn Alexander Skarsgård er staddur hér á landi samkvæmt fjölmörgum heimildum Lífsins.

Til hans sást meðal annars á Reykjavíkurflugvelli í dag og á rölti upp Austurstræti og Laugaveg í kvöld. Einn heimildarmanna sagði hann hafa verið í „túristalegri útivistarpeysu“, en leikarinn, sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum True Blood, greindi frá því í síðasta mánuði að hann væri væntanlegur hingað til lands í frí.

„Tökum á seríunni lýkur eftir tvær vikur og þá ætla ég í vikulanga gönguferð á Íslandi,“ sagði leikarinn. „Enginn sími, enginn iPad, ekki neitt. Ég er mjög spenntur.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×