Stúdentar æfir vegna fyrirætlana LÍN Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 26. júní 2013 21:57 Ljóst er að fyrirhugaðar breytingar á lánakerfi LÍN munu hafa miklar afleyðingar í för með sér, en námsnenn stunda nám við mjög misjafnar aðstæður. Myndin tengist frétt ekki beint. MYND/ÚR SAFNI
Fjöldi námsmanna mótmælir fyrirætlunum LÍN um að hækka kröfur um námsframvindu á nýstofnaðri Facebook síðu. Síðan var stofnuð fyrr í kvöld undir yfirskriftinni „Námsmenn af fullri alvöru - gegn niðurskurði fjárframlaga til Lín". Þar gagnrýna nemendur ummæli Illuga Gunnarssonar, menntamálaráðherra, um að þeir sem séu í námi af fullri alvöru ættu að geta risið undir auknum kröfum lánasjóðsins. Eins og Vísir greindi frá í dag sagði María Rut Kristinsdóttir, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands, breytingarnar bitna helst á fjölskyldufólki og fólki með námsörðugleika. Nemar stundi nám við afar misjafnar aðstæður. Á nokkrum klukkutímum hafa hátt í tvö þúsund manns látið sér líka við síðuna og deilt margvíslegum áhyggjum sínum og ástæðum þess að það getur ekki risið undir auknum kröfum. Meðal þeirra eru einstæðir foreldrar og fólk í fjarnámi sem býr erlendis. Þá lýsti nemandi við Bifröst því yfir að nýtt fyrirkomulag gerði fólki bókstaflega ómögulegt að stunda nám þar. Vala Waldorf, nemi í félagsfræði við HÍ, á aðeins 18 einingar eftir til að ljúka BA- námi. Hún sér því fram á að þurfa að bæta við sig fjórum einingum sem koma ekki til með að nýtast henni neitt. „Ég er að gera upp við mig hvort ég þurfi að taka einn auka áfanga sem telst ekki einu sinni inn í námið mitt og gerir ekkert nema taka tíma frá hinu, eða hvort ég þurfi að vinna mjög mikið til að eiga fyrir leigu og mat," segir hún. Vala segir beinlínis verið að refsa þeim námsmönnum sem eru komnir langt í sínu námi. Auknar kröfur LÍN til námsframvindu setji stórt strik í reikninginn fyrir fjölmarga. „Þetta kemur líka fram svo seint, flestir eru búnir að skipuleggja næsta námsvetur núna og gera tilheyrandi ráðstafanir."
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira