Innlent

Ungir framsóknarmenn skora á Illuga

Ungir framsóknarmenn skora á Illuga Gunnarsson menntamálaráðherra að skerða ekki aðgang fólks til náms með fyrirhuguðum breytingum á reglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna.

LÍN ætlar að hækka kröfur um námsframvindu og hafa fjöldi námsmanna gagnrýnt ummæli Illuga þess efnis að þeir sem séu í námi af fullri alvöru ættu að geta risið undir auknum kröfum lánasjóðsins. Stúdentaráð Háskóla Íslands hefur meðal annars gagnrýnt breytinguna, og segja hana bitna helst á fjölskyldufólki og fólki með námsörðugleika.

Hafþór Eide, formaður Sambands ungra framsóknarmanna
Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna hefur samþykkt áskorun til Illuga um að taka þessar breytingar til baka enda gangi þær „þvert á stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, svo sem að efla menntakerfið með hagsmuni nemenda að leiðarljósi og að berjast gegn brottfalli úr námi,“ eins og segir í tilkynningu frá sambandinu.

„Ljóst er að margir nemendur sem reiða sig á LÍN yrðu illa úti þar sem persónulegir hagir þeirra takmarka oft möguleikann á að stunda fullt nám. Mikilvægi menntunar fyrir okkar fámennu þjóð verður seint ofmetið. Þekking er og verður undirstaða framfara,“ segir í tilkynningunni.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×