Stefna vegamálastjóra vegna Gálgahrauns Kristján Hjálmarsson skrifar 11. júní 2013 11:11 Miklar deilur hafa staðið um fyrirhugaðar framkvæmdir við Gálgahraun.
Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands, Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands og Hraunavinir hafa stefnt Hreini Haraldssyni vegamálastjóra fyrir hönd Vegagerðarinnar, til viðurkenningar á því að framkvæmd um gerð Álftanesvegar milli Hafnarfjarðarvegar og Bessastaðavegar um þvert Gálgahraun, sem Vegagerðin auglýsti með útboði hinn 7. ágúst 2012 sé ólögmæt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum. Í tilkynningunni segir að um prófmál sé að ræða varðandi rétt umhverfisverndarsamtaka og hópa til að láta reyna á fyrir dómi lögmæti framkvæmda sem raskað geta ósnortinni náttúru og valdið óafturkræfum náttúruspjöllum. Síðustu ár hafi átt sér stað mikilvæg réttarþróun í þá veru að styrkja aðkomu umhverfisverndarsamtaka að málum sem þessum. Í nokkur ár hafa staðið deilur um lagningu nýs Álftanesvegar milli Hafnarfjarðarvegar og Bessastaðavegar. Deilurnar hafa snúist um það hvort leggja skuli hluta hins nýja vegar yfir ósnortið hraun – Gálgahraun í landi Garðabæjar, en hraunið er á Náttúruminjaskrá. Bent hefur verið á að forsendur fyrir framkvæmdinni hafi gjörbreyst frá upphaflegri áætlun. Byggðaþróun hefur orðið með allt öðrum hætti en spáð var og ekkert útlit er fyrir að þar verði stórfelldar breytingar í bráð sem kalli á viðlík náttúruspjöll. Yfirvöld í Garðabæ og Vegagerðin hafa hins vegar staðið þvert gegn formlegri endurskoðun framkvæmda og athugun á einfaldari, náttúruvænni og ódýrari kostum. Viðhorf almennings og réttarþróun hafa sömuleiðis breyst verulega á þeim rúmu 11 árum sem liðin eru frá endanlegri útgáfu umhverfismats, segir í tilkynningunni. Samtökin telja að útboðið um veginn sem auglýst var 7. ágúst 2012 hafi verið ólöglegt þar sem bæði framkvæmdaleyfi og umhverfismat hafi verið útrunnin, en engar framkvæmdir hafi hafist á gildistíma þeirra. Því þurfi að taka málið upp að nýju og setja í löglegan farveg. Ekki hefur enn verið skrifað undir verksamning. Skúli Bjarnason og Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir, hjá lögmannsstofunni Málþingi ehf., reka málið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, fyrir hönd samtakanna.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fleiri fréttir „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Sjá meira