Innlent

Íslensku stúlkurnar áfram í gæsluvarðhaldi

Stúlkurnar voru handteknar á flugvellinum í Prag í nóvember síðastliðnum. Á myndunum til hægri má sjá hvernig kókaínið var falið í ferðatöskunum.
Stúlkurnar voru handteknar á flugvellinum í Prag í nóvember síðastliðnum. Á myndunum til hægri má sjá hvernig kókaínið var falið í ferðatöskunum. Mynd/Vísir
Gæsluvarðhald yfir tveimur átján ára íslenskum stúlkum, sem sitja í fangelsi í Prag eftir að kókaín fannst í farangri þeirra síðastliðið haust, hefur verið framlengt fram í ágúst.

Stúlkurnar voru handteknar í byrjun nóvember með nokkur kíló af kókaíni sem höfðu verið falin vandlega í ferðatöskum þeirra. Þær voru úrskurðaðar í sjö mánaða gæsluvarðhald stuttu eftir að þær voru handteknar og rann varðhaldið út nú í byrjun mánaðarins.

Faðir annarar stúlkunnar sagði í samtali við fréttastofu í morgun að fjölskyldan fengi litlar sem engar upplýsingar frá lögreglunni í Prag. Þó hefði hann fengið þær fréttir á dögunum að gæsluvarðhaldið hafi verið framlengt fram í ágúst. Eina sem fjölskyldan geri nú er bara að bíða og vona að það gerist eitthvað í málinu með haustinu.

Hörð viðurlög eru við smygli af þessu tagi í Tékklandi og í haust kom fram í þarlendum fjölmiðlum að þær gætu átt yfir höfði sér tíu til átján ára langt fangelsi. Faðir stúlkunnar segir að hann hafi enga tilfinningu fyrir því hversu þungan dóm þær fá, í ljósi þess hversu litlar upplýsingar hafa borist til fjölskyldunnar, en eina sem hægt sé að gera er að bíða og vona það besta.

Í janúar síðastliðnum fóru foreldrar stúlkunnar í fangelsið í Prag þar sem þau hittu hana. Hann segir að vel sé hugsað um þær, þrátt fyrir að aðbúnaðurinn sé ekki upp á marga fiska. Hún sé örugg, þrátt fyrir vonda aðstöðu, eins og hann orðaði það.

Stúlkurnar voru að koma frá Sao Paolo í Brasilí með viðkomu í Munchen í Þýskalandi þegar þær voru handteknar. Í Fréttablaðinu í nóvember var haft eftir lögreglunni að ljóst þyki að smyglið hafi verið þaulskipulagt af vönum glæpamönnum - það hafi meðal annars mátt sjá á því hversu vandlega efnin voru falin í töskunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×