Golfið að gleypa veiðina Jakob Bjarnar Grétarsson skrifar 31. maí 2013 11:38 Bjarni Júlíusson. Veiðimenn velja golfið en margvíslegar ástæður eru að baki meiri samdrætti í sölu veiðileyfa enn hefur sést.
Samdráttur í sölu veiðileyfa, um heil þrjátíu prósent, er án fordæma. Margvíslegar ástæður búa þar að baki; ein er sú að golfið er að gleypa veiðina. Bjarni Júlíusson er formaður Stangveiðfélags Reykjavíkur og hann telur sitthvað til í þeirri kenningu.Aflabrestur í fyrra án fordæma „Við skulum nú samt passa okkur, það eru vafalaust fleiri þættir sem þarna eiga í hlut," segir Bjarni. Hann segir ljóst að samdrátturinn sé í það minnsta þrjátíu prósent, eins og skýrsla Landsambands stangaveiðimanna, sem birtist í gær segir til um. Bjarni telur að samdráttinn megi rekja til fjögurra atriða: Laxveiðin sé orðin alltof dýr. „Sumir segja að hækkunin hafi tvöfaldast að raungildi á síðustu tuttugu til þrjátíu árum. Í öðru lagi varð aflabrestur í fyrra og veiðin var slök og hafði ekki verið jafn slök í um heila öld." Í þriðja lagi setur bágt efnahagsástand strik í reikninginn, ekki aðeins hér á landi heldur í Evrópu, til að mynda á Spáni en menn hafa komið þaðan til veiða í gegnum tíðina. Dregið hefur úr því. Fólk á ekki pening.Hitti veiðifélagana í flughöfninni „Svo er það þetta atriði sem þú nefnir sem er að veiðin á í samkeppni við aðra glæsilega afþreyingu sem byggir á útivist, fjölskyldustemmingu og vinasporti. Og þar er golfið vissulega að keppa við veiðina." Menn sem fara í golferðir til útlanda kannast gjarnan við margan manninn í hópi ferðafélaga: „Félagi minn var að koma úr golferð frá Spáni, þar sem hann dvaldi í átta daga og borgaði um 160 þúsund krónur fyrir pakkann í heild sinni. Mér finnst það slæmt því hann ætlar ekki að verja þessum peningum í laxveiði í sumar. En, það sem var ennþá verra er að þegar hann mætti út á flughöfnina í Keflavík og hittir hópinn sem var að fara þarna saman út, þá þekkti hann nánast hvern einasta mann. Þetta voru allt vinir og gamlir veiðifélagar sem nú voru komnir í nýjan gír," segir Bjarni.Norðurá opnar 5. júní Bjarni ber sig þó ekki illa. „Ekki hægt annað en vera kátur á þessum degi. Frábært veiðveður er úti, það rignir og þá kemur vatn í árnar. Laxinn er byrjaður að ganga. Menn eru búnir að sjá laxa í nokkrum ám. Og laxveiðin hefst með bravör næstkomandi miðvikudag, 5. júní þegar Norðurá verður opnuð."
Mest lesið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira