Ökuferð til Akureyrar fyrir minna en 3.000 krónur Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 31. maí 2013 14:32 Að sögn framkvæmdarstjóra FÍB er hægt að ná verulegum sparnaði við akstur með meðvituðu aksturslagi. MYND/ÚR SAFNI
Árleg sparaksturskeppni FÍB og Atlantsolíu var sett kl. 9 í morgun. 24 fólksbílar aka nú 382 km á milli Reykjavíkur og Akureyrar. Keppendur þurfa að vera búnir að ljúka keppni á 5 klukkutímum og 10 mínútum. Á heimasíðu FÍB er hægt að fylgjast með bílunum í rauntíma. Allar hreyfingar bílanna eru skráðar niður með þar til gerðum búnaði. Keppendum er skylt að aka samkvæmt umferðarlögum, en öll frávik, eins og óeðlilega hægur akstur eða hraðakstursbrot, kosta keppendur refsistig. Ferðalög þurfa ekki að kosta háar upphæðir Sparaksturskeppnin er að þessu sinni haldin til að vekja athygli á ferðalögum Íslendinga um eigið land og sýna fram á það að með yfirveguðu og góðu aksturslagi sé hægt að komast ansi langt á eldsneytislítranum. Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, segir að það sé nauðsynlegt að fólk geri sér grein fyrir því að ekki þurfi að kosta háar upphæðir að fara með fjölskylduna landshorna á milli. „Í sparaksturskeppninni eru bílar sem eru að ná til Akureyrar fyrir innan við 3.000 krónur. Með meðvituðu aksturslagi er hægt að ná verulegum sparnaði við akstur, ég tala nú ekki um þá staðreynd að meðvitaður akstur eykur umferðaröryggi til muna.“ Einn elsti bílafloti í Evrópu Runólfur segir að það sé orðið nauðsynlegt að endurnýja bílaflota landsins. Íslenski bílaflotinn sé orðinn einn sá elsti í Evrópu og meðalaldur bílanna sé rúmlega 12 ár. „Ætli þetta sé ekki fylgifiskur kreppunnar. 10-15 ára bílar eyða margir hverjir rúmlega 20% meira eldsneyti en sambærilegir nýir bílar. Þar að auki eru nýrri bílar mun öruggari.“ Bílarnir sem taka þátt í sparaksturskeppninni koma frá bílaumboðum landsins, en enginn þeirra er eldri en 2012 árgerð. „Þetta er góð vísbending til neytenda. Þarna geta þeir séð svart á hvítu hverju bílinn er að eyða,“ segir Runólfur, sem býst við fyrstu bílunum í mark þá og þegar.
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Sjá meira