Óraunhæft að færa Reykjavíkurflugvöll Kristján Már Unnarsson skrifar 23. maí 2013 15:00
Nýja ríkisstjórnin telur mikilvægt að framtíðarstaðsetning Reykjavíkurflugvallar verði tryggð í nálægð við stjórnsýslu og aðra þjónustu. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, telur hugmyndir um að færa flugvöllinn óraunhæfar. Athygli vekur að sérstakt ákvæði er sett í stjórnarsáttmálann um Reykjavíkurflugvöll, þrátt fyrir að skipulagsvaldið sé hjá Reykjavíkurborg. Mál flugvallarins verða í höndum ráðherra Sjálfstæðisflokks og var formaður flokksins spurður um hvort þetta ákvæði þýddi að völlurinn ætti að vera í Vatnsmýri. Bjarni Benediktsson sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar að með þessu væri verið að undirstrika mikilvægi þess að Reykjavíkurflugvöllur gegndi áfram því hlutverki sem hann hefði gegnt fram til þessa. Óvissa um framtíð flugvallarins ylli fólki á landsbyggðinni og mörgum öðrum miklum áhyggjum. Með því að setja þetta í stjórnarsáttmála væri verið að lýsa yfir stuðningi við að Reykjavíkurflugvöllur væri nálægt stjórnsýslunni og mikilvægum stofnunum eins og Landspítalanum. Ekki væri þó tekin afstaða til skipulagsmála né til þess hvort hann væri í Vatnsmýri eða annarsstaðar. „Ég get sjálfur sagt að mér hefur þótt sem allar hugmyndir um að færa völlinn hafi verið heldur óraunhæfar, - ekki verið á borðinu neinn skýr valkostur fyrir staðsetningu á vellinum," sagði Bjarni. Ákvæði stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um flugvöllinn hljóðar svo: „Reykjavíkurflugvöllur er grundvallarþáttur í samgöngum landsins. Til þess að hann geti áfram gegnt því mikilvæga þjónustuhlutverki sem hann hefur gert gagnvart landinu öllu þarf að tryggja framtíðarstaðsetningu hans í nálægð við stjórnsýslu og aðra þjónustu."
Mest lesið Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Innlent Fleiri fréttir „Hverra hagsmuna er verið að gæta?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Sjá meira