Blæs risasköflum burt eftir minni af Mjóafjarðarheiði Garðar Örn Úlfarsson skrifar 27. maí 2013 07:00 Camilla Ýrr og Arnar Freyr heimsóttu pabba sinn í vinnuna uppi á Mjóafjarðarheiði í gær. Tíkin Myrra fylgdi með. Mynd/Kristín Hávarðsdóttir
Ásgeir Jónsson hefur eftir besta minni grafið frá því á þriðjudag í gegnum hátt í fimm metra skafla á veginum í Mjóafjörð. Í gær náði Ásgeir efst á heiðina og reiknar með þriggja daga snjóblæstri enn áður en fært er orðið. „Þetta er óvenju mikið,“ segir Ásgeir Jónsson sem frá því á þriðjudag hefur verið að ryðja snjóalög vetrarins á leiðinni frá Fagradal ofan í Mjóafjörð. Vegurinn í Mjóafjörð hefur verið ófær frá því nokkru fyrir jól. Ásgeir reiknar með að blása þurfi snjó af um átján kílómetra kafla. „Það eru fimm ár síðan ég blés þetta síðast. Það var í byrjun maí. Þá vorum við þrjá daga að fara alla heiðina,“ segir Ásgeir sem í gær náði hápunkti Mjóafjarðarheiðar og reiknar með að minnsta kosti þriggja daga snjóblæstri í viðbót. „Ég á eftir að fara niður Mjóafjarðarmegin og þar eru nú yfirleitt stærstu skaflarnir. Fúsi á Brekku kom hér á vélsleðanum sínum í dag og sagðist búast við að þeir yrðu upp undir sjö metrar. Ég held nú að þeir verði ekki svo háir, ég býst við svona fimm til sex metrum hæst,“ segir Ásgeir sem reynir að hitta á veginn eftir minni því engir gps-punktar eru til um leiðina. „Ég er hálfur Mjófirðingur því móðir mín er fædd þar og er búinn að fara þetta nokkuð oft. Þannig að maður er nokkurn veginn með þetta í hausnum.“ Ein og sjá má gnæfa skaflarnir yfir allt.Mynd/Kristín Hávarðsdóttir Stund milli stríða.Mynd/Kristín Hávarðsdóttir Ásgeir reiknar með þriggja daga snjóblæstri enn áður en fært er orðið.Mynd/Kristín Hávarðsdóttir Ásgeir blæs eftir minni.Mynd/Kristín Hávarðsdóttir
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira