Aðalflugbraut lokað 2016 og vellinum eftir áratug Kristján Már Unnarsson skrifar 27. maí 2013 18:46
Borgarstjórn Reykjavíkur ætlar að halda fast við þau áform sín að tveimur af þremur flugbrautum Reykjavíkurflugvallar verði lokað á næstu þremur árum og vellinum síðan endanlega lokað eftir áratug. Þetta kemur fram í nýju aðalskipulagi sem kynnt verður síðar í vikunni. Vatnsmýrin verður eitt af þremur svæðum sem gegna munu lykilhlutverki í þróun Reykjavíkur á næstu áratugum, segir í texta aðalskipulagsdraganna, en hin eru Elliðaárvogur og miðborgin og gamla höfnin. Með uppbyggingu þessara svæða verði snúið við áratugalangri útþenslu Reykjavíkur til austurs og vexti borgarinnar beint inn á við, segir ennfremur í skipulagstextanum. Þar er boðað að 6.900 íbúðir verði í Vatnsmýri, fjórtán þúsund íbúar, tólf þúsund störf og þrír grunnskólar. Sýnt er markmið um losun lands til uppbyggingar á næstu árum, strax verði byrjað á að byggja svæðið þar sem litla brautin er, suðvestur-norðausturbrautin, bæði við Skerjafjörð og á Hlíðarenda, árið 2015 verði farið að byggja svæði sunnan við Norræna húsið, árið 2016 verði aðalflugbrautinni lokað, norður-suðurbrautinni, og byggt á svæði milli Loftleiðahótels og Hringbrautar og einnig vestan Háskólans í Reykjavík, þar sem Landhelgisgæslan er. Árið 2024 verði síðan afgangurinn tekinn til uppbyggingar, austur-vestur-brautinni lokað, og flugvallarstarfsemi endanlega hætt. Í skipulagstillögunni eru birtar myndir af því hvernig hin nýju hverfi gætu litið út. Markmið borgarstjórnar um hvernig land flugvallarins verði losað til uppbyggingar. Þess má geta að fyrir fimm dögum kynnti ný ríkisstjórn stjórnarsáttmála þar sem því er lýst yfir að framtíðarstaðsetning Reykjavíkurflugvallar verði tryggð í nálægð við stjórnsýslu og aðra þjónustu, án þess þó að tekin væri afstaða til skipulags Vatnsmýrar.
Tengdar fréttir Óraunhæft að færa Reykjavíkurflugvöll Nýja ríkisstjórnin telur mikilvægt að framtíðarstaðsetning Reykjavíkurflugvallar verði tryggð í nálægð við stjórnsýslu og aðra þjónustu. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, telur hugmyndir um að færa flugvöllinn óraunhæfar. 23. maí 2013 15:00 Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól Sjá meira
Óraunhæft að færa Reykjavíkurflugvöll Nýja ríkisstjórnin telur mikilvægt að framtíðarstaðsetning Reykjavíkurflugvallar verði tryggð í nálægð við stjórnsýslu og aðra þjónustu. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, telur hugmyndir um að færa flugvöllinn óraunhæfar. 23. maí 2013 15:00