Kærustu meðlims vélhjólagengis dæmdar bætur 29. maí 2013 15:23 Hells angels á Íslandi. Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Kærustu meðlims í vélhjólagengi voru dæmdar 250 þúsund krónur í miskabætur í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag vegna ólögmætrar frelsissviptingar við húsleit á heimili hennar. Konan kom að heimili sínu í mars á síðasta ári en þá voru þar fyrir lögreglumenn sem voru að leita á heimili hennar. Þeir höfðu heimild til þess en í dómi segir að ástæðan hafi verið rannsókn lögreglu á fjölda alvarlegra ofbeldisbrota þar sem viðriðnir væru meðlimir svokallaðra vélhjólagengja en maðurinn hefur áður verið tengdur vélhjólagenginu Fáfni, og síðar Vítisenglunum. Rökstuddur grunur hafi legið fyrir um að meðlimir þessara klúbba hygðu á enn frekari ofbeldisverk sem hefðu verið að fullu skipulögð. Brýnt hafi verið talið að framkvæma leit á heimilum og dvalarstöðum þessara einstaklinga til þess að koma höndum yfir gögn, tæki og tól sem tengdust slíkum fyrirætlunum og hefðu verið ætluð til nota við framkvæmd þeirra. Meðal þess sem fundust við húsleitina heima hjá konunni, voru skotfæri sem voru í eigu kærastans. Konan brást illa við húsleit lögreglu og varð það til þess að hún var handjárnuð í tæpa klukkustund á meðan húsleitin fór fram. Í niðurstöðu dómsins segir að konan hefði að ósekju verið svipt frelsi sínu og því fallist á að greiða konunni bætur, en hún fór upprunalega fram á að fá 600 þúsund krónur í miskabætur.
Mest lesið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Fleiri fréttir Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Sjá meira