Grundvallarbreytingar á íslenskum fjarskiptamarkaði Þorgils Jónsson skrifar 29. maí 2013 18:41 Hefðbundin talsímaþjónusta er á hægu undanhaldi en gagnaflutningar á farsímaneti hafa stóraukist Mynd/ AFP
Þróun hefur verið hröð á íslenska fjarskiptamarkaðinum síðustu misseri og nú standa yfir umskipti á markaði þar sem áhersla fjarskiptafyrirtækjanna færist frá talsímaþjónustu yfir í gagnaflutninga. Í nýrri skýrslu Póst- og fjarskiptastofnunar þar sem tekin er saman ýmiskonar tölfræði um fjarskiptamarkaðinn sést glögglega hversu hratt hlutirnir hafa þróast. Hefðbundin talsímaþjónusta er á hægu undanhaldi en gagnaflutningar á farsímaneti hafa stóraukist, meðal annars vegna þess að farsímar og spjaldtölvur eru að miklu leyti nýttar til að sækja myndir, myndbönd og sjónvarpsútsendingar. Til dæmis kemur fram í skýrslunni að símtölum innan fastaneta fækkaði um tólf prósent á milli áranna 2010 og 2012. Úr tæpum 463.000 símtölum á ári niður í tæp 409.000 símtöl. Á sama tímabili fjölgaði símtölum úr farsímum hér á landi lítillega, úr um það bil 399.000 símtölum árið 2010 upp í tæplega 413.000 símtöl árið 2012. Heildarfjöldi farsímaáskrifta fór á sama tíma úr 375.000 áskriftum upp í tæplega 400.000 áskriftir. Gagnaflutningar um farsímanetið hafa hins vegar tvöfaldast og rúmlega það. farið úr 582.000 gígabætum árið 2010, upp í rúmlega 1.2 milljónir gígabæta á síðasta ári. Liv Bergþórsdóttir, framkvæmdastjóri fjarskiptafyrirtækisins Nova, segir í samtali við fréttastofu að þessi þróun hafi hafist árið 2007. Á síðasta ári hafi ákveðið stökk átt sér stað, en það eigi enn eftir að aukast stórum með bættri tækni. "Á þessu ári munum við sjá öfluga 4G snjallsíma koma á markaðinn, sem styðja tíu sinnum meiri hraða en 3G snallsímar gera, þannig að hraðinn er alltaf að aukast og efni á netinu er verður í sífellt meira magni lifandi sjónvarpsefni en ekki að megninu til texti eins og er í dag. Símarnir eru svo sífellt að verða öflugri þannig að við erum bara að stíga okkar fyrstu skref í notkun netsins í farsímum."
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira