Sport

Karatemenn gerðu það gott í Noregi

Íslensku verðlaunahafarnir.
Íslensku verðlaunahafarnir. Mynd/Karatesamband Íslands
Íslenskir karatemenn gerðu það gott á Norðurlandameistaramótinu sem fram fór í Osló í Noregi í dag. Íslendngarnir unnu til alls ellefu verðlauna.

Yfir 200 keppendur keppendur voru skráðir til leiks frá 7 löndum auk nokkurra liða.  Íslenska landsliðinu gekk vel í dag, unnu til þriggja silfurverðlauna og átta bronsverðlauna.  

Kvennaliðið í kata, sem varð Norðurlandameistari í fyrra, mættu danska liðinu í úrslitum í ár.  Eftir frábæra kata og góða bunkai biðu þær lægri hlut er danska liðið vann 3-2.  

Einum besta árangri í dag náði Sindri Pétursson sem keppti í kumite cadet -61kg, en eftir að hafa unnið tvær viðureignir nokkuð örugglega mætti hann Dananum Chris Norskov Jensen í úrslitum.  

Það var erfið viðureign fyrir Sindra en Daninn vann á endanum og hlaut Sindri því silfur, þess má geta að þetta er í fyrsta sinn sem Sindri tekur þátt í Norðurlandameistaramóti.  

Pétur Már Gíslason hlaut einnig silfur í kumite senior +84kg þegar hann mætti Philip Carlsen frá Danmörku sem hafði sigur 4-2 eftir jafna viðureign.  

 

Hér má svo sjá yfirlit yfir verðlaunahafana í dag;

1) Silfur í Hópkata kvenna; Aðalheiður Rósa Harðardóttir, Kristín Magnúsdóttir, Svana Katla Þorsteinsdóttir.

2) Silfur í kumite cadet -61kg; Sindri Pétursson

3) Silfur í kumite senior +84kg; Pétur Már Gíslason

4) Brons í kumite senior -84kg; Pétur Rafn Bryde

5) Brons í kumite senior -67kg; Elías Guðni Guðnason

6) Brons í kumite senior -67kg; Kristján Helgi Carrasco

7) Brons í kumite senior -61kg; Telma Rut Frímannsdóttir

8) Brons í kumite cadet -54kg; Edda Kristín Óttarsdóttir

9) Brons í kata junior; Davíð Freyr Guðjónsson

10) Brons í hópkata cadet/junior; Breki Guðmundsson, Davíð Freyr Guðjónsson, Heiðar Benediktsson

11) Brons í sveitakeppni í kumite; Elías Guðni Guðnason,  Jóhannes Gauti Óttarsson, Kristján Helgi Carrasco, Pétur Már Gíslason, Pétur Rafn Bryde




Fleiri fréttir

Sjá meira


×