Landvernd krest þess að hætt verði við Bjarnarflagsvirkjun 14. apríl 2013 16:40
Aðalfundur Landverndar, sem var haldinn í Reykjavík í dag, hvetur stjórn Landsvirkjunar og sveitarstjórn Skútustaðahrepps til að hlífa lífríki Mývatns við auknu álagi sem mun fylgja fyrirhugaðri Bjarnarflagsvirkjun við Mývatn. Það verði einungis gert með því að hætta við byggingu virkjunarinnar fyrir fullt og allt. Þetta kemur fram í ályktun fundarins. Á fundinum var kynnt niðurstaða könnunar sem Capacent-Gallup vann fyrir Landvernd. Samkvæmt henni eru 43,6% andvíg virkjanaframkvæmdum í Bjarnarflagi við Mývatn en 30,5% eru hlynnt þeim. Í sömu könnun var spurt um afstöðu fólks til þess að fleiri álver yrðu reist hér á landi til viðbótar við þau sem þegar eru starfandi. 51,3% reyndust andvíg fleiri álverum en 30,9% hlynnt. Svo segir í tilkynningu frá Landvernd: Í ályktun aðalfundarins segir einnig að Umhverfisstofnun hafi sett Mývatn á rauðan lista yfir svæði sem eru talin í verulegri hættu á að tapa verndargildi sínu. Í yfirlitsskýrslu Umhverfisstofnunar segi m.a. um ógnir sem steðja að Mývatni: ,,Áform eru um að virkja í Bjarnarflagi og óvissa ríkir um áhrif virkjanaframkvæmda á vistkerfi Mývatns." Því hvetur aðalfundur Landverndar verkefnisstjórn 3. áfanga Rammaáætlunar og Alþingi til að endurskoða flokkun Bjarnarflags í rammaáætlun, þannig að svæðið færist að minnsta kosti í biðflokk á meðan möguleg áhrif Bjarnarflagsvirkjunar á lífríki Mývatns eru rannsökuð. Alþingi er einnig hvatt til að lögleiða að nýju vernd Mývatns- og Laxársvæðisins sem var afnumin með lögum nr. 97/2004. Einstakt lífríki Mývatns skapar því sérstöðu á heimsvísu og í verndaráætlun fyrir Mývatn og Laxá segir að það sé skylda núlifandi kynslóðar að varðveita sérstöðu svæðisins og þar með að tryggja komandi kynslóðum sama aðgengi og svipaða upplifun og við getum notið nú í dag.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Sjá meira