Davíð segir fjölmarga hafa séð útskriftina 10. mars 2013 12:00 Davíð Oddsson Mynd/Anton Brink
Davíð Oddsson, fyrrverandi Seðlabankastjóri, segir fjölmarga hafa séð útskrift af samtali þeirra Geirs Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, sem fjárlaganefnd hefur óskað eftir vegna 500 milljóna evra láns til Kaupþings haustið 2008. Davíð segir að um ófrægingarherferð sé að ræða, því hafnar formaður fjárlaganefndar, þjóðin eigi rétt á upplýsingunum. Í Reykjavíkurbréfi Sunnudagsmoggans fjallar Davíð um störf sín sem seðlabankastjóri og óskir fjárlaganefndar Alþingis um að fá upplýsingar um samtal hans milli hans og Geirs Haarde sem þykir gefa upplýsingar um hvers vegna ákvörðun var tekin um að veita Kaupþingi 500 milljóna evra lán án fullnægjandi trygginga 6. október 2008, þremur dögum áður en bankinn fór á hausinn. Með lánveitingunni var stærsta hluta gjaldeyrisvaraforða Íslands á þeim tíma ráðstafað til bankans sem síðan var yfirtekin af Fjármálaeftirlitinu þremur dögum síðar. Fjárlaganefnd Alþingis birti í gær skýrslu um málið í henni segir að svo virðist sem Davíð og Geir hefðu verið meðvitaðir um stöðu Kaupþings þegar ákveðið var að veita lánið. Björn Valur Gíslason, formaður fjárlaganefndar, vill að ljósi sé varpað á málið en til þess sé nauðsynlegt að fá upplýsingar um hvað fór á milli þeirra Davíðs og Geirs í símtali þar sem tekin var ákvörðun um lánveitinguna. Seðlabankinn hafi þó neitað að afhenda upplýsingar um símtalið. Í Reykjavíkurbréfinu er talað um ófræingarherferð Björns Vals í þessu samhengi. Þá segir að synjun Seðlabankans við óskum um að birta upplýsingar um símtal hans og Geir hafi aldrei verið borin upp við þá sem símtalið áttu heldur sé vísað í lög sem um bankann gilda. Samtalið hafi aðeins haft eina þýðingu, það er að staðfesta að lánið var veitt með samþykki oddvita ríkisstjórnarinnar.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Máttu tæma lónið Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Fleiri fréttir Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Sjá meira