Innlent

Bæjarstjórn Akraness samþykkir söluna á Orkuveituhúsinu

Bæjarstjórn Akraness hefur samþykkt sölu á Orkuveituhúsinu í Reykjavík, en bærinn á  hátt í sex prósent í Orkuveitunni.

Fulltrúar Sjálfstæðismanna í bæjarstjórninni sátu hjá en létu bóka að þeir væru samþykkir að húsið yrði selt, en þá væri eðlilegt að að höfuðstöðvarnar yrðu fluttar annað, en húsið ekki tekið á leigu undir þær áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×