Tilnefningar til Blaðamannaverðlauna fyrir 2012 2. mars 2013 12:08 Mynd úr safni.
Blaðamannaverðlaunin verða afhent í Gerðasafni laugardaginn 9. mars en tilnefningarnar voru tilkynntar í gær. Tilnefningarnar eru þrjár í hverjum flokki, en flokkarnir eru nú fjórir þar sem flokkurinn „Viðtal ársins" er nú með í fyrsta sinn. Tilnefningarnar eru sem hér segir:Umfjöllun ársins Egill Ólafsson, Morgunblaðinu, fyrir vandaðan, skjótan og alhliða fréttaflutning af illviðri og snjókomu í september 2012, þar sem frá upphafi var dregin fram og skilgreind yfirvofandi ógn fyrir fólk og búfénað. Kristjana Guðbrandsdóttir, DV, fyrir viðamikinn og vandaðan greinaflokk um einhverfu, ýmsar birtingarmyndir hennar og vandamál við greiningu, ekki síst hjá stúlkum. Sunna Valgerðardóttir, Fréttablaðinu, fyrir áhrifamikla, heildstæða og vel unna röð fréttaskýringa um stöðu geðfatlaðra.Rannsóknarblaðamennska Andri Ólafsson, Stöð 2, fyrir afhjúpandi fréttir af aðkallandi fjárhagsvanda hjúkrunarheimilisins EIR. Jóhann Bjarni Kolbeinsson, fréttastofu RÚV, fyrir uppljóstrandi og ítarlega umfjöllun um kadmíum í áburði annars vegar og notkun iðnaðarsalts í matvælum hins vegar. Jóhannes Kr. Kristjánsson, Kastljósi, fyrir að draga fram óbirtar og gagnrýnar skýrslur Ríkisendurskoðunar um bókhaldskerfi ríkisins og fyrir að varpa, ásamt Helga Seljan ljósi á umdeild atriði varðandi innleiðingu kerfisins.Viðtal ársins Anna Brynja Baldursdóttir, Vikunni, fyrir opinskátt viðtal við Agnesi M. Sigurðardóttur, biskup sem tjáði sig þar með einlægum hætti um bæði persónuleg mál sín og atriði sem varða embættið. Sigmar Guðmundsson, Kastljósi, fyrir sérstaklega áhrifaríkt og sterkt viðtal við Eirík Inga Jóhannsson, sjómann sem komst lífs af þegar togarinn Hallgrímur fórst. Skapti Hallgrímsson, Morgunblaðinu, fyrir sérstaklega vel skrifað og lifandi mannlífsviðtal við eistneska tónlistarmanninn Valmar Valjaots.Blaðamannaverðlaun ársins Ingi Freyr Vilhjálmsson, DV, fyrir umfjöllun um fiskveiðar Íslendinga við Afríku og ýmis skrif um viðskipti og uppgjör í kjölfar hrunsins. Ragnar Axelsson, Morgunblaðinu, fyrir merka umfjöllun og myndir af stórum pollum á Grænlandsjökli sem voru til marks um óvenju mikla bráðnun Grænlandsjökuls. Una Sighvatsdóttir, Morgunblaðinu, fyrir greinaflokkinn Váin á vegum, þar sem fjallað var um umferðarslys frá mörgum sjónarmiðum með því að tvinna saman ýmsar fjölmiðlagáttir s.s. prentmiðilinn, netið, gagnvirka grafíska framsetningu og myndskeið.
Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent Fleiri fréttir Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sjá meira