Innlent

Lögreglan kom í veg fyrir voðaverk í nótt

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kom að líkindum í veg fyrir voðaverk með því að stöðva dópaðan ökumann, sem skömmu áður hafði affelgað bíl sinn þegar hann ók fram af vegkanti við Landsspítalann við Hringbraut laust fyrir miðnætti.

Við leit í bílnum fannst hnífur, sem ökumaðurinn sagðist hafa ætla að nota til að ganga frá, eða skera mann, sem hann átti eitthvað sökótt við, og var hann á leið til þess verknaðar.

Hann var vistaður í fangageymslum og verður rannsókn málsins fram haldið í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×