Innlent

Tveir teknir við að pissa á hurð stjórnarráðsins

Lögreglumenn stóðu tvo menn að verki þar sem þeir voru að spræna á hurð stjórnarráðsins við Lækjartorg í nótt.

Ekki kemur fram í skeyti lögrdglunnar hvort þeir gerðu þetta í einnhverskonar mótmælaskyni, eða hvort kall náttúrunnar bar svona brátt að.

Mönnunum var sleppt eftir að þeir höfðu játað og undirritað skýrslu um málið, en sektir liggja við slíku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×