Þetta er líklegast alvarlegasta ógnin við framtíðarhagsmuni þessarar þjóðar Hugrún Halldórsdóttir skrifar 6. janúar 2013 19:49
Formaður Landverndar segir atvinnuvegaráðherra hafa afvegaleitt umræðuna um olíuleit og vinnslu á Drekasvæðinu, ákvarðanir um að leyfa mögulegar boranir verða ekki teknar í framtíðinni líkt og ráðherrann hefur sagt því þær hafa þegar verið teknar. Orkustofnun gaf á föstudag út fyrstu leyfi fyrir olíuleit á Drekasvæðinu en forsvarsmenn fyrirtækjanna sem standa að leitinni segja raunhæft að áætla að hún geti hafist innan þriggja til fjögurra ára og hægt verði að byrja að dæla upp olíu innan átta ára. Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra segir þetta þó ekki þýða að Ísland sé orðið að olíu eða gasvinnsluríki. „Ákvarðanir um slíkt liggja langt inni í framtíðinni þar með talið það hvort og þá hvenær menn tækju afstöðu til þess og leyfðu mögulegar boranir," segir Steingrímur. Guðmundur Hörður Guðmundsson, formaður Landverndar, gagnrýnir þessi orð Steingríms og segir hann vera að afvegaleiða umræðuna. „Með því að halda því fram að þarna sé ekki verið að taka ákvörðun um olíuvinnslu. Þetta er ákvörðun um olíuvinnslu, samningur er um olíuleit og olíuvinnslu þannig að það verður ekkert snúið til baka ef olía finnst þarna á annað borð. Ég myndi þá ímynda mér að það myndi kosta kynslóðir framtíðarinnar miklar skaðabætur ef það ætti að segja nei þá," segir hann. Guðmundur segir það áhyggjuefni hversu lítið hafi farið fyrir þessari umræðunni. „Samfélagið hefur í rauninni ekki verið spurt á nokkurn hátt, það hefur aldrei verið kosið um þetta og þetta hefur ekki farið hátt í sölum Alþingis." Og hann segist skynja áhugaleysi á málinu meðal margra þingmanna. „Þrátt fyrir þá alvarlegu stöðu sem stöndum frammi fyrir í loftlagsmálum. Þetta er mjög alvarlegt mál og líklegast alvarlegasta ógnin við framtíðarhagsmuni þessarar þjóðar," segir Guðmundur að lokum.
Mest lesið Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Erlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Innlent Fleiri fréttir Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Lítilsvirðandi að segja að uppsagnirnar muni ekki bitna á þjónustu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Illa lagður pallbíll upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Sjá meira