Hægt að nálgast uppruna og innihald matvæla í farsímanum Hrund Þórsdóttir skrifar 16. apríl 2013 19:01
Tæknin er til staðar til að gera neytendum kleift að nálgast upplýsingar um uppruna og innihald matvæla, með því að skanna strikamerki inn í snjallsíma. Forstjóri Matís vonar að appið verði aðgengilegt hinum almenna neytanda sem fyrst. Á ráðstefnu um matvælaöryggi í dag voru ræddar leiðir til að tryggja öryggi upplýsinga um uppruna hráefna. Hertar reglur Evrópusambandsins um rekjanleika verða væntanlega teknar upp hér á landi á næsta ári og segir Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís, þær munu auka kröfur um gagnsæi. „Við erum bara að tala um að auka traust á matvælaframleiðslu og því að þú ert í raun að kaupa það sem þér er sagt að þú sért að kaupa," segir Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís. Á ráðstefnunni var kynnt ný lausn, sem gera mun neytendum kleift að nálgast upplýsingar um vörur með því að skanna strikamerki inn í snjallsíma. Upplýsingar í svokallaðri gagnalaug munu koma frá framleiðendum, sem bera ábyrgð á gögnunum og munu notendur geta valið hvað þeir vilja skoða. „Sumir hafa til að mynda áhuga á umhverfismálum og gætu þá óskað eftir slíkum upplýsingum. Aðrir myndu frekar vilja vita hvort varan kom frá Íslandi eða annars staðar frá." Þá verða upplýsingar um næringargildi, fæðuóþol og fleira aðgengilegar á ýmsum tungumálum. Sveinn segir tæknina til staðar, næstu skref hvíli á matvælaframleiðendum og vilja neytenda til að kalla eftir upplýsingum. „Þessi lausn sem hefur verið í þróun er auðvitað mikilvæg fyrir íslenska neytendur, en hún er ekki síður mikilvæg fyrir íslenska matvælaframleiðendur því ef við stöndum okkur vel á heimamarkaði. Þá erum við líka í stakk búin til að miðla upplýsingum til erlendra kaupenda, til neytenda og hótela erlendis. Það er aukin eftirspurn eftir upplýsingum.“
Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Fleiri fréttir Þrjátíu grindhvalir við Hólmavík Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sjá meira