Draga á úr álaginu á lyflækningasviði Jóhanna Margrét Einarsdóttir og Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 13. september 2013 07:00 Björn Zoëga forstjóri LSH og Kristján Júlíusson velferðarráðherra kynntu tillögur til úrbóta á lyflækningasviði á blaðamannafundi í gær. Fréttablaðið/Pjetur „
Hvort þær úrbætur sem boðaðar eru af hálfu heilbrigðisráðherra á lyflækningasviðinu duga einar sér á eftir að koma í ljós. Vandamálin verða til staðar að minnsta kosti eitthvað fram á veturinn en þetta er kannski upphafið að því að hefja endurreisnarstarf á sviðinu,“ segir Karl Andersen, prófessor í hjartalækningum. Kristján Júlíusson heilbrigðisráðherra kynnti í gær aðgerðaáætlun í nokkrum liðum sem á að bæta stöðu lyflækningasviðs Landspítala – háskólasjúkrahúss. Samkvæmt henni á að draga úr álagi á starfsemi lyflækningasviðsins með því að finna ný vistunarúrræði fyrir 50 aldraða sjúklinga sem lokið hafa meðferð á sjúkrahúsinu en hafa ekki komist í hjúkrunarrými. Skipa á yfirlækni almennra lyflækninga á næstu dögum. Starfshópur á svo að skila forstjóra margvíslegum tillögum fyrir októberlok. Björn Zoëga forstjóri vonast til að boðaðar breytingar komi í veg fyrir atgervisflótta og að fleiri komi til starfa á sjúkrahúsinu. Segir álagið þegar vera of mikiðÍ tillögum ráðherra og forstjóra LSH er meðal annars gert ráð fyrir að nýttir verði betur „kraftar og hæfni“ hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og fleiri stétta til að styðja við störf lækna. Ólafur G. Skúlason, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, hefur miklar áhyggjur af því aukna álagi sem stuðningurinn felur í sér. „Álagið er nú þegar gríðarlegt en ef skapað verður svigrúm til að hjúkrunarfræðingar geti bætt við sig verkefnum fagna ég því að nýta eigi betur menntun þeirra, þekkingu og færni,“ segir Ólafur.
Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfinn Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fleiri fréttir Flugstjórinn þögull sem gröfinn Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Sjá meira