"Finnum að við erum ekki ein í þessu“ Hödd Vilhjálmsdóttir skrifar 8. ágúst 2013 18:30
Fáum miklu meiri aðstoð hér á landi en í Póllandi segja foreldrar annarar stúlkunnar sem lést í bílslysi á Suðurlandsvegi síðastliðinn sunnudag. Sett hefur verið af stað söfnun til að aðstoða fjölskyldur stúlknanna við að koma þeim til Póllands, þar sem þær verða jarðsettar. Stúlkurnar tvær Magdalena Hyz, sextán ára og Natalia Gabinska, fimmtán ára, voru á ferðalagi með móður þeirrar síðarnefndu og kunningja hennar þegar slysið varð síðastliðinn sunnudag. Stúlkurnar létu báðar lífið en móðirinn og maðurinn, sem ók, komust bæði lífs af. Þær voru í heimsókn hér á landi og var þetta önnur ferð Nataliu til Íslands, en móðir hennar er búsett hér. Magdalena var í heimsókn hjá frænku sinni og var hún á landinu í fyrsta skipti auk þess sem þetta var hennar fyrsta ferð utan landsteina Póllands. Foreldrar Magdalenu segja hana hafa verið yndislega stúlku sem hafði mikinn áhuga á íþróttum og þá sérstaklega fótbolta og blaki. Hún lauk grunnskólagöngu sinni á þessu ári og var á leið í menntaskóla í haust. Magdalena var mjög spennt fyrir þessari fyrstu utanlandsferð sinni. „Hún kom til frænku sinnar, vildi skoða heiminn og það gerðist sem gerðist,“ segir Ana Hyz, móðir hennar. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á gjörgæsludeild Landspítalans er maðurinn sem ók alvarlega slasaður og er honum enn haldið sofandi í öndunarvél. Ástand móður Nataliu er að sögn vinkonu hennar betra og segir hún hana líklega losna af spítala í dag. „Ástand hennar er betra, það er enginn skaði í heilanum eða höfðinu. Andleg heilsa hennar er aftur á móti hræðileg,“ segir Sylwia Burzykowska, vinkona móður Nataliu. Stúlkurnar verða báðar jarðsettar í heimalandi sínu og fylgir því mikill kostnaður að flytja lík þeirra til Póllands, en hann getur hlaupið á milljónum króna. Fjölskyldurnar hafa sett af stað söfnun í nafni stúlknanna til þess að reyna að standa straum af kostnaðinum og Anna segir þau vanta aðstoð og að þau fái meiri aðstoð á Íslandi en í Póllandi. Fjölskyldurnar eru þakklátar fyrir þann stuðning sem þeim hefur verið sýndur og segir Agnieszka Hyz, frænka Magdalenu, að þau finni fyrir því að þau séu ekki ein í þessu. „Við erum mjög þakklát,“ segir hún.Þeir sem vilja styrkja fjölskyldurnar geta lagt inn á reikning 0130-05-061895, kt. 200579-4029.
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Konan sem var borin út er látin Erlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Fleiri fréttir Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sjá meira