Skelfing greip um sig á Allanum 7. janúar 2013 16:39
Skelfing greip um sig meðal barna og fullorðinna þegar eldur kviknaði í skemmtistaðnum Allanum á Siglufirði á miðri þrettándaskemmtun þar í gærkvöldi. Mildi þykir að sjö ára stúlka, sem var við eldsupptökin, skuli hafa sloppið ómeidd. Mikill reykur barst inn á staðinn og eldvarnarkerfið glumdi, þegar gestirnir, líklega um það bil eitt hundrað, þustu út, hver sem betur gat. Svo vel vildi til að fjórir slökkviliðsmenn voru á ballinu og skipulögðu þeir rýmingu hússins þannig að enginn meiddist í troðningi. Slökkvilið Fjallabyggðar kom brátt á staðinn og slökkti eldinn, sem átti upptök í lagergeymslu í húsinu. Þar voru meðal annars geymdir flugeldar og mun litla stúlkan hafa verið þar að fikta með eldspýtur og kveikt í einum þeirra, með þeim afleiðingum að það kviknaði í fleirum. Í stað þess að stirðna af skelfingu, brást hún skjótt við og forðaði sér út úr eldhafinu. Hún kenndi sviða í augum og andliti og var flutt á heilsugæsluna til aðhlynningar, en mun ekki hafa hlotið varanlegan skaða. Að sögn Ólafíu Guðmundsdótttur veitingamanns, er allt sviðið og blautt inni i geymslunni og reykur barst um allt húsnæðið, en vaskur hópur vann að hreinsun í alla nótt. Fulltrúar Rauða krossins og slökkviliðsstjórinn í Fjallabyggð heimsóttu grunnskólann í morgun til að fara yfir atvikið með börnunum og róa þau, en mörg þeirra munu hafa átt erfitt með svefn í nótt.
Mest lesið Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Innflytjendamálin almenningi efst í huga Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira