Afdrifarík líkamsárás komin fyrir dóm Stígur Helgason skrifar 17. september 2013 07:00 Bergur segist hafa logið sökum upp á Annþór Karlsson og Börk Birgisson í fyrra. Fréttablaðið/GVA
Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur Bergi Má Ágústssyni, 29 ára margdæmdum afbrotamanni, fyrir líkamsárás að morgni 4. janúar 2012. Samkvæmt ákærunni mætti Bergur á heimili Smára Valgeirssonar í Vesturbergi í Breiðholti vopnaður kylfu. Hann barði annan mann sem kom til dyra, Sigmund Geir Helgason, í höfuðið með sleggjunni og braut síðan rúðu með þeim afleiðingum að glerbrotum rigndi yfir Smára, sem skaddaðist við það á auga. Ákæran var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær og þar neitaði Bergur Már sök. Atvikið í Vesturbergi var afdrifaríkt, því að síðar um daginn héldu Smári og Sigmundur vopnaðir í fylgd átta annarra að heimili Bergs í Háholti í Mosfellsbæ til að hefna árásarinnar. Þar var Bergur Már meðal annars fótbrotinn með stórri plastsleggju. Meðal þeirra sem fóru í Háholt voru Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson og árásin þar var þungamiðjan í umfangsmiklu dómsmáli sem kennt var við tvímenningana. Í því máli hlutu þeir sjö og sex ára fangelsisdóma um síðustu áramót, Smári tveggja ára dóm og Sigmundur 18 mánaða dóm. Síðan hefur Bergur gefið skýrslu fyrir dómi og fullyrt að hann hafi logið sökum upp á Annþór og Börk, undir þrýstingi frá lögreglu og fleirum. Smári hefur einnig kært Berg Má fyrir að stinga sig í lærið með hníf við bar í Breiðholti í fyrrahaust.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fleiri fréttir „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Sjá meira