Safna til stuðnings sýrlensku þjóðinni Elimar Hauksson skrifar 7. september 2013 07:00 Sjálfboðaliðar Rauða krossins stóðu fyrir samkomu á Lækjartorgi þar sem vakin var athygli á þjáningum sýrlensku þjóðarinnar.FRéttablaðið/Vilhem
Sjálfboðaliðar Rauða krossins komu saman á Lækjartorgi í gær til að vekja athygli á þeim hrikalegu aðstæðum sem Sýrlendingar búa við bæði innan og utan eigin landamæra. Rauði krossinn vill með þessu sýna samstöðu í verki og hvetja almenning til að gera slíkt hið sama. Í tilkynningu frá Rauða krossinum segir að í Sýrlandi ríki nú mesta neyð sem hjálparstofnanir hafa þurft að takast á við á undanförnum árum. Starfsmenn og sjálfboðaliðar Rauða hálfmánans í Sýrlandi veiti tveimur milljónum manna lífsnauðsynlega aðstoð á degi hverjum. Til að standa undir þeirri aðstoð verði Rauði krossinn á Íslandi að leggja sitt af mörkum. Sólveig Ólafsdóttir, upplýsingafulltrúi Rauða krossins á Íslandi, segir vel hafa tekist til með viðburðinum á Lækjartorgi. „Þetta hefur vakið vakið heilmikla athygli. Íslendingar sýna mikinn samhug og skilning með fólki í neyð. Við auglýstum samstöðuna ekkert en samt kom fólk af götunni og bað um að fá að taka þátt,“ segir Sóley. Hún segir systursamtök Rauða krossins, Rauða hálfmánann, vinna hættulegt starf á svæðinu. „Það hafa 22 sjálfboðaliðar og starfsmenn þeirra látið lífið frá því átökin í Sýrlandi brutust út,“ segir Sóley. Leggja má söfnun Rauða krossins lið og hringja í söfnunarsímann 904-1500 en þá bætast 1.500 krónur við símreikning. Þannig megi styðja við verkefni Rauða krossins í Sýrlandi og nágrannaríkjum þar sem milljónir flóttamanna hafast við.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira