„Ef ekkert verður gert förum við í greiðsluþrot“ Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 7. september 2013 12:11 Greiðsluþrot blasir við Eyþingi
Greiðsluþrot blasir við Eyþingi, Sambandi sveitafélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslu, vegna halla á rekstri Strætó á Norður og Norðausturlandi. Sveitafélögin hafa séð um almenningsamgöngur á svæðinu síðan í fyrra. Formaður Eyþings segir málið alvarlegt. Í fyrra setti ríkið inn í vegaáætlun að færa almenningssamgöngur frá vegagerð til sveitafélaga og hafa þau séð um reksturinn í rúmlega ár. Geir segir að snemma á árinu hafi komið í ljós að það stefndi í halla, en að menn hafi bundið vonir við að reksturinn tæki við sér yfir sumartímann. Nú er hins vegar ljóst að mikill halli er á rekstrinum. Geir Kristinn Aðalsteinsson, formaður Eyþings, segir stöðuna grafalvarlega. „Við höfum verið að ganga á sjóði Eyþings til þess að geta staðið við greiðslur. Þetta er verkefni sem við tókum við frá ríkinu í fyrra og að okkar mati ekki eðlilegt að sveitafélögin þurfi að standa undir kostnaði þegar verkefni eru tekin yfir frá ríkinu. Ef ekkert verður að gert förum við í greiðsluþrot," segir Geir. Hann segir að sveitafélögin þurfi að greiða rútuverktakanum sem sér um keyrsluna 4 milljónir króna á miðvikudag næstu viku, og fyrir því séu ekki til peningar. Fundað verður með þingmönnum kjördæmisins og innanríkisráðherra um málið á þriðjudag. „Hvort ábyrgðin lendir á sveitafélögunum eða annarstaðar er lögfræðilegt úrlausnarefni sem vonandi þarf ekki að koma til þess að reyni á. Við vonumst til þess að við náum að landa þessu máli með ráðherra og þingmönnum. Ég er jákvæður á að það séu allir að vilja gerðir til að koma þessu máli í höfn. Verkefnið er gott en það þarf bara að vera rétt gefið í upphafi, það er svona lykilpunkturinn í málinu," segir hann.Myndir úr bæklingi sem Strætó gaf út um áramótin.
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fleiri fréttir Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Það er ekkert bjart yfir okkur akkúrat í dag“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjá meira