Fannst lífshættulega slasaður á bílastæði Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 7. september 2013 19:45 Maðurinn fannst á bílastæði við Hrafnistu.
Maður á níræðisaldri sem fannst liggjandi á bílastæði við Hrafnistu á þriðja tímanum í nótt er lífshættulega slasaður. Talið er að maðurinn hafi dottið niður af steinvegg og var fallið um einn metri. Maðurinn er íbúi í þjónustuíbúð við Norðurbrún, rétt við Hrafnistu. Kona, sem er aðstandandi hans, er í áfalli vegna slyssins. Hún segir að hann sé brotinn í andliti, bæði kinnbeinin séu brotin, hann sé höfuðkúpubrotinn og nefbrotinn. Rifbein hafi brotnað og stungist inn í lunga og þá sé maðurinn einnig bakbrotinn. Þegar hann fannst hafi líkamshiti hans verið kominn niður í 33 gráður. Konan segist líta málið mjög alvarlegum augum. Samkvæmt þeim upplýsingum sem aðstandendur hafi fengið hafi maðurinn fundist um klukkan þrjú í nótt. En í þjónustuíbúðunum eigi að vera búið að loka húsnæðinu klukkan 12 á miðnætti. Það sé því sé ljóst að maðurinn, sem er heilabilaður, hafði verið einn á ráfi úti í nokkuð langan tíma. Hún undrast að starfsfólkið hafi ekki tekið eftir því að maðurinn var ekki í herbergi sínu og greinilega ekki farið að litast um eftir honum. Hún segir að aðstandendum hafi verið sagt að það hafi verið öryggismenn á Hrafnistu sem heyrðu gamla manninn hrópa á hjálp og komið honum til bjargar. Aðstandendur mannsins vilja að farið verði ofan í saumana á því hvernig þetta gat gerst og það verði að koma í veg fyrir að svona lagað geti gerst aftur.Athugið. Í fyrri útgáfu af fréttinni stóð að maðurinn hafi verið íbúi á Hrafnistu. Hið rétta er að hann býr á Norðurbrún.
Mest lesið Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Innlent Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Innlent Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Innlent Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Innlent Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Erlent Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Erlent Barinn við barinn en gerandinn farinn Innlent Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir er látin Innlent Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Innlent B sé ekki best Innlent Fleiri fréttir Tilkynnt um bíl fullan af bensínbrúsum Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Tollarnir sem bíta nú þegar, sögulegur fundur og fjársjóður Fækkar sífellt í Þjóðkirkjunni Rithöfundur ráðinn til varnarmálaskrifstofunnar Barinn við barinn en gerandinn farinn Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Gerðu langtímasamning um niðurgreidd liðskipti og brjóstaminnkun Dagbjartur aðstoðar Daða Má Innviðaráðherra leggur af stað í fundaferð um samgöngumálin Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir er látin Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Fagnar áformum um mótun atvinnustefnu Úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um íkvekju Hlið við Reynisfjöru, tollar og yfirlýsing leiðtoga ESB B sé ekki best Kiðjabergsmálinu hvergi nærri lokið Mannréttindabarátta ekki í samkeppni um athygli Stórfelld líkamsárás og ráðist á dyravörð Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Tilfelli alvarlegrar ókyrrðar gætu tvöfaldast vegna loftslagsbreytinga Óvenjuleg ákvörðun, holskefla kvartana og ókyrrð Upphaflegasta útgáfa Snorra-Eddu snýr heim eftir fjögurra alda útlegð Einnota plastvörur fái sérstaka merkingu „Sannarlega ekki eitthvað sem ég ætlaði að taka þátt í“ Stytta opnunartíma Seltjarnarneslaugar: „Er þetta það sem við viljum spara í?“ Ókyrrð að aukast en lítil hætta á ferðum Komu ferðamönnum í sjálfsheldu á Búlandstindi til aðstoðar Fylla í skörð reynslubolta Sjá meira