Gjaldskrá sögð fela í sér grófa mismunun Svavar Hávarðsson skrifar 26. febrúar 2013 05:30 Um 85 kílómetrar eru á milli Neskaupstaðar og Stöðvarfjarðar. Hvert gjaldsvæði er 15 kílómetrar. Íbúar jaðarbyggðanna horfa fram á aukinn kostnað við að sækja þjónustu í miðju sveitarfélagsins á Reyðarfirði. fréttablaðið/gva
Ný gjaldskrá fyrir almenningssamgöngur í Fjarðabyggð er orðin hitamál innan bæjarstjórnar. Ekki greiða allir íbúar lengur sama gjald eins og var heldur ræður búseta kostnaði. Mismunun, segir minnihlutinn en meirihlutinn hafnar gagnrýni. Minnihlutinn í bæjarstjórn Fjarðabyggðar gagnrýnir hart nýja gjaldskrá fyrir almenningssamgöngur innan sveitarfélagsins. Með nýrri gjaldskrá er íbúum sveitarfélagsins mismunað, er fullyrt, enda sveitarfélaginu skipt upp í nokkur gjaldsvæði sem verður til þess að kostnaður íbúa jaðarbyggða eykst. Meirihluti bæjarstjórnar hafnar gagnrýninni með öllu. Elvar Jónsson, oddviti Fjarðalistans í bæjarstjórn Fjarðabyggðar, segir það skoðun minnihlutans að Fjarðabyggð eigi að vera eitt gjaldsvæði fyrir alla notendur almenningssamgangna. Hann vísar í bókun Fjarðalistans þar sem segir að í sameinuðu fjölkjarna sveitarfélagi sé ekki „eðlilegt að gert sé upp á milli íbúanna og þeir sem þurfa að sækja atvinnu, skóla eða þjónustu um lengstan veg greiði mest." Elvar segir breytta gjaldskrá ekkert annað en mismunun sem gangi gegn hugmyndum um Fjarðabyggð sem eina sterka heild. „Það er mat okkar að sú ákvörðun meirihlutans í bæjarstjórn Fjarðabyggðar að skipta sveitarfélaginu upp í nokkur gjaldsvæði sé mikið högg fyrir sameiningarferlið. Það er rökrétt að álíta sem svo að jöfnuður meðal íbúa sveitarfélagsins, eins og frekast er kostur, sé stórt atriði í því að þeir upplifi sig sem hluta af einni heild – einu sveitarfélagi," segir Elvar. Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs, hafnar gagnrýni Fjarðalistans og segir samgöngukerfið mikið framfaraskref fyrir íbúa sveitarfélagsins og það sé ríflega niðurgreitt. „Að nota þennan ferðamáta kostar tíunda hluta þess að ferðast með einkabíl. Það hlýtur að vera stórkostlegt framfaraskerf." Spurður um gagnrýni sem lýtur að mismunun íbúa innan Fjarðabyggðar eftir búsetu svarar Jens Garðar með dæmi og segir að Norðfirðingur sem notar kerfið mikið þurfi að borga rúmlega þúsund krónum meira á ársgrundvelli sé miðað við Reyðarfjörð sem miðju sveitarfélagsins. Þá greiði börn undir 16 ára aldri ekkert; framhaldsskólanemar, eldri borgarar og fatlaðir borgi eitt gjald. Spurður hvort öflugt sveitarfélag eins og Fjarðabyggð geti ekki veitt öllum íbúum sama verð á ferðum segir Jens Garðar að það myndi kosta 20 til 30 milljónir króna og minnihlutinn verði að svara því hvaða þjónustu á að skerða á móti. Þetta fé sé ekki til í sjóðum Fjarðabyggðar eins og stendur.
Mest lesið Hringvegurinn lokaður og viðvaranir í gildi Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Hringvegurinn lokaður og viðvaranir í gildi Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Sjá meira