Stefnir í óefni með stjórnskipun landsins 5. janúar 2013 12:19
Það stefnir í óefni með sjálfa stjórnskipun landsins vegna meðferðar ríkistjórnarinnar á stjórnarskrármálinu og því var það rétt af forsetanum að taka á málinu á ríkissráðsfundi. Þetta segir Þorsteinn Pálsson fyrrverandi ráðherra. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands gagnrýndi í nýársávarpi sínu drög að nýrri stjórnarskrá og sagði umræðu um þau komin í öngstræti. Þá greindi hann frá því að hann hefði tekið málið upp á ríkissráðsfundi á gamlársdag. Þorsteinn Pálsson fyrrverandi ráðherra skrifaði um málið í Fréttablaðinu í dag. Hann segir forsetanum settar mjög þröngar skorður að blanda sér inn í viðfangsefni stjórnmálanna. „Það getur því aðeins gerst, að mínu mati, að það stefni í óefni með sjálfa stjórnskipu landsins og mitt mat er það að svo sé vegna meðferðarinnar ríkisstjórnarinnar á stjórnarskrármálinu og því hafi það verið rétt af forsetanum að taka á málinu. Það er formlega rétt að gera það í ríkisráðinu og ég tel hann hafi farið rétt að með því að taka málið upp þar. Þar með er þetta formleg athöfn af hans hálfu," segir Þorsteinn. Hann telur að fordæmi séu fyrir því að forseti taki mál upp í ríkisráði. „Það þarf ugglaust að leita að því í skjalasöfnum en ég hygg að það séu einhver fordæmi fyrir því en þó varla með svo afgerandi hætti varðandi jafn stórt mál eins og þetta." Þá telur Þorsteinn að kalla eigi aftur til fundar í ríkisráði. Hann segir eðlileg næstu skref vera að forsætisráðherra geri grein fyrir stöðunni að sinni hálfu á fundi í ríkisráðinu og geri síðan Alþingi og þjóðinni grein fyrir því hvernig hann bregst við.
Mest lesið Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Erlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent Fleiri fréttir Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Sjá meira