Mörgum sinnum betri kostur en að setja spítalann á hliðina 13. febrúar 2013 20:35 Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans. Mynd/Anton
Nýr stofnanasamningur sem undirritaður var milli hjúkrunarfræðinga og Landspítalans í gær var kynntur fyrir hjúkrunarfræðingum í dag. Samningurinn felur í sér frá tæplega fimm og upp í 9,6 prósenta launahækkun sem dreifist eftir menntun og starfsreynslu en auk þess hefur spítalinn kveðið að greiða út svokallaða álagsgreiðslu afturvirkt í tvo mánuði, en hún er frá fimmtán og upp í þrjátíu þúsund krónur á mánuði og þurfa hjúkrunarfræðingar sem sagt hafa upp að draga uppsögn sína til baka fyrir miðnætti á morgun til að fá greiðsluna. „Áherslan er á það að allir fái sambærilegt í grunninn og síðan náðum við inn þeirri áherslu sem við höfum verið að vinna að lengi að viðbótarnám sé betur metið til launa og við náðum ágætum árangri þar,“ segir Elsa B. Friðfinnsdóttir formaður félags hjúkrunarfræðinga í kvöldfréttum Stöðvar 2. Ríkið leggur til samtals rúmar fjögur hundruð milljónir en spítalinn þarf að standa straum af viðbótarhækkunum. Björn Zoëga, forstjóri spítalans, segir það vera hátt í tvö hundruð milljónir til viðbótar. „Við ákváðum að ef þetta yrði til þess að deilan myndi leysast þá er það mörgum sinnum betri kostur en að setja spítalann á hliðina, að reyna að eyða næstu mánuðum í það að finna þetta fé," segir Björn og bætir við að fjármunirnir ekki koma úr frekari hagræðingaraðgerðum. „Við verðum að finna þetta fé annars staðar. Fresta einhverjum hlutum, ákvörðunum, eða fá meira fé frá ríkinu enda erum við rekin fyrir ríkisfé.“
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Erlent Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Innlent Fleiri fréttir Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Sjá meira