Líf og fjör í Laugardalnum 17. ágúst 2013 15:29
Það er nóg um að vera fyrir Reykvíkinga á öllum aldri sem vilja njóta þess að vera útivið í góða veðrinu og hitta mann og annan. Útihátíð er í Grafarholti, útimarkaður í Laugardal og hjólabrettamót í Fellagörðum. Hjólabrettamótið Skate Sultan fer fram í Fellagörðum við Eddufell frá klukkan þrjú til sex í dag. Móthaldarar segja unga sem aldna velkomna á mótið og þeir sem geti lagt bretti undir iljar séu sérstaklega hvattir til að mæta, sýna sig og sjá aðra. Ekki er um formlega keppni að ræða en veitt verða verðlaun fyrir besta trikkið, frumlegasta trikkið, asnalegasta trikkið, hæsta kickflippið og alls konar aðra vitleysu eins og fram kemur í lýsingu á viðburðinum á fésbókarsíðu hans. Íbúasamtök Laugardals standa fyrir árvissum útimarkaði við skátaheimili Skjöldunga. Útimarkaðurinn er nú haldinn í ellefta sinn, en á hverju ári er honum fundinn nýr staður á einhverju áhugaverðu opnu svæði innan Laugardalshverfanna þriggja. Í tilkynningu segir að um 160 seljendur hafi skráð sig að þessu sinni og að á útimarkaðnum kenni ýmissa grasa á söluborðum íbúa. Ávallt sé mikil stemning á markaðnum og skemmtilegar uppákomur séu stór hluti af aðdráttarafli hans. Eldhresst hæfileikafólk á öllum aldri úr Voga-, Langholts- og Laugarneshverfi muni troða upp og skemmta sér og öðrum við leik og söng.Í Holtinu heima kallast síðan hverfishátíð sem haldin er í Grafarholti frá klukkan eitt í dag. Berghildur Erla Bernharðsdóttir formaður Íbúasamtaka Grafarholts segir að hátíðin sé nú haldin í annað sinn. „Og mikil stemming. Við verðum með markað niður í Leirdalnum þar sem verða að minnsta kosti á þriðja tug söluaðila ef ekki fleiri. Þar verður jafnframt skemmtun með ýmislegt í boði fyrir fjölskylduna, leikir og annað. Svo ætlar stórsöngvarinn Hreimur að koma og spila um klukkan þrjú en svo viðljum við gjarnan mynda stemmingu fyrir bikarúrslitaleikinn þar sem okkar menn (Fram) leikur á móti Stjörnunni á Laugardalsvelli í dag,“ segir Berghildur Erla. Fólk sé einnig hvatt til að grilla við hús sín til að skapa stemmingu í hverfinu og í kvöld klukkan níu verði síðan kvöldskemmtun í Leirdalnum þar sem hljómsveitin Feðgarnir halda uppi fjörinu. Og þá verður stiginn dans. „Þá verður stiginn dans og vonandi sungið mikið,“ segir Berghildur Erla.Það var líf og fjör í Laugardalnum í dag þegar árlegur útimarkaður var haldinn.Myndir/Jóhannes Stefánsson
Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Sigríður Björk aftur færð til Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Innlent Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent Foksandur og rykagnir búa í þokunni Innlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Innlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent