Innipúki utandyra Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 3. ágúst 2013 18:20
Þó að landmenn séu margir staddir á útihátíðum er nóg um að vera í Reykjavík. Tónlistarhátíðin Innipúkinn fer fram í tólfta skipti um helgina. Dagskrá hátíðarinnar er fjölbreytt, en í dag var meðal annars haldin flóamarkaður í Faktorýportinu og lífi blásið í gamla tónlistarhátíð í Breiðholtinu. Dagskráin fer ekki bara fram innandyra, heldur verður nóg að gerast í Faktorýportinu alla helgina. Flóamarkaðurinn Nískupúkinn fór fram í dag, þar sem ýmislegt var falt fyrir rétta upphæð. „Okkur langaði að hafa stemninguna þannig að hún væri allan daginn, eins og oft tíðkast á hátíðum sem eru haldnar yfir verslunarmannahelgina. Til að halda portinu svolítið lifandi ákváðum við að halda fatamarkað, og gefa fólki tækifæri á að bæði selja föt og finna sér eitthvað fínt til að vera í fyrir kvöldið, segir Ragnheiður Maísól Sturludóttir, skemmtana- og skreytingarstjóri Innipúkans í ár. Edda Kristín Hauksdóttir er ein þeirra sem ákvað að slá til og selja utan af sér spjarirnar í dag. „Ég ákvað að taka aðeins til í fataskápunum og koma með allt góssið hingað. Ég meina hvað á maður að gera annað en að taka til í skápunum þegar það rignir svona rosalega eins og í júlí? Við vinkonurnar ákváðum bara að tæma úr skápunum og taka okkur svo til og baka kanilsnúða í ofanálag sem við seldum á hundraðkall stykkið,“ segir Edda kampakát með sölu dagsins. Dagskrá Innipúkans er ekki bara í miðbæ Reykjavíkur heldur er Rykrokk tónlistarhátíðin í Fellagörðum hluti af dagskránni í þetta sinn. Rykkrokk var síðast haldið 1995 en ákveðið var að blása nýju lífi í hátíðina í ár. Langi Seli og Skuggarnir, Prins Póló, Tanya & Marlon og Samaris stigu á stokk, en allir þeir tónlistarmenn sem fram komu eiga það sameiginlegt að hafa sérstaka tengingu við Breiðholtið.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira