Kristjáni Loftssyni lýst sem blóðugum slátrara: Öfgafull ummæli, segir ráðherra Jakob Bjarnar Grétarsson skrifar 3. júní 2013 11:55 Kristján Loftsson: Blóðugur slátrari og margmilljónamæringur. Sigurður Ingi Jóhannsson ráðherra segir skrifin öfgafull. Mynd/ Anton Brink
Breskir fjölmiðiðlar vilja áfram beina spjótum sínum að Kristjáni Loftssyni og hvalveiðum Íslendinga. Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra segir skrifin óvenju harkaleg.Neikvæðar fréttir áhyggjuefni Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf er harðlega gagnrýndur í breska netmiðlinum Morning Star í dag fyrir að ætla að slátra hátt í tvö hundruð Langreyðum í sumar, eins og það er orðað. Pistlahöfundur lýsir því hvernig hinar mögnuðu skepnur langreyðin haldi á Íslandsmið á sumrin en í þetta skipti bíði floti hins blóðuga slátrara og margmilljónamærings Kristjáns Loftsonar eftir hvölunum til að slátra þeim. Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra segir það vissulega áhyggjuefni þegar fjallað er á neikvæðan hátt um Ísland í erlendum fjölmiðlum: "Það er vissulega alltaf áhyggjuefni þegar birtast neikvæðar fréttir um Ísland. Við þekkjum þessa um hvalveiðarnar og þann skort á skilningi sem þær hafa í mörgum löndum; hina eðlilegu nýtingu okkar á auðlindinni á sjálfbæran hátt. Það er vinna sem við höfum verið í á umliðnum árum og munum án efa halda áfram að reyna að snúa, í erlendum fjölmiðlum sem og annars staðar," segir ráðherra.Öfgafullar skoðanir Greinarhöfundur Morning Star gefur ekkert eftir, segir að Kristján gefi lítið fyrir almenningsálit umheimsins í leit sinni eftir illafengnum gróða og honum sé sama þótt þessi mögnuðu spendýr hafsins þjáist mikið þegar þau eru skotinn með sprengjuskutli. Þá hlusti hann heldur ekki á mótmæli samtaka íslenskra ferðamála. "Þetta eru auðvitað ótrúlega öfgafull ummæli," segir Sigurður Ingi um lýsinguna á Kristjáni Loftssyni. "Og þetta eru oft á tíðum öfgafullar skoðanir sem fólk hefur og byggjast iðulega á þekkingarleysi á atvinnugreinum og nýtingu landa sem hafa aldagamlar hefðir við nýtingu auðlinda sinna."
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Sjá meira