Innlent

Sala á netinu rúmlega tvöfaldast

Höskuldur Kári Schram skrifar
samsett mynd

Lítið hefur dregið úr plötu- og geisladiskaútgáfu hér á landi þrátt fyrir að Íslendingar kjósi í vaxandi mæli að kaupa tónlist á Netinu. Sala á Netinu hefur rúmlega tvöfaldast á síðustu þremur árum.

Plötu og geisladiskaútgáfa virðist lifa góðu lífi hér á landi ef marka má tölur hagstofunnar um útgefið tónlistarefni. Frá því um miðjan síðasta áratug hefur útgáfa haldist nær stöðug - sé miðað við fjölda titla.

Frá aldamótum hefur sala á hljómplötum og geisladiskum hins vegar dregist saman um rúmlega helming. Úr 712 þúsund eintökum árið 2002 í 289 þúsund eintök á síðasta ári.

Á saman tíma hefur niðurhal á tónlist aukist verulega. eða úr 101 þúsund eintökum árið 2010 í 246 þúsund eintök í fyrra.

Ingvar Geirsson, eigandi hljómplötuverslunarinnar Lucky Records, segir að það hafi tilfinningalegt gildi fyrir tónlistarmenn að gefa út efni á geisladisk eða hljómplötu og að eftirspurn sé enn töluverð meðal tónlistarunnenda.

„Það er öðruvísi að setja plötu á fóninn frekar en að hafa þetta í einhverjum graut á tölvunni sem rúllar. Það er meiri fyrirhöfn að setja plötuna á og það hefur meiri sjarma,“ segir Ingvar og bætir því við að plötuverslanir séu þegar byrjaðar að aðlagast breyttu markaðsumhverfi. Þær séu orðnar sérhæfðari og persónulegri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×