RÚV: Höldum okkur við prinsippin! Guðmundur Edgarsson skrifar 27. júlí 2013 00:00 Fróðlegt hefur verið að fylgjast með skeleggri framgöngu Brynjars Níelssonar alþingismanns varðandi tilgang RÚV í nútímasamfélagi. Brynjar tekur stöðu með skattborgurum þessa lands og spyr hverju það sæti að enn sé verið að reka fjölmiðil á vegum ríkisins þegar tækniframfarir undanfarna áratugi hafa gert það að verkum að einkareknir fjölmiðlar og netið geta auðveldlega sinnt öllum þeim verkefnum sem ríkisútvarpinu einu var á sínum tíma ætlað að sinna.Karpað um aukatriði Þrátt fyrir viðleitni Brynjars til að halda mönnum við efnið hefur sú umræða sem átt hefur sér stað í fjölmiðlum að undanförnu um málefni RÚV því miður einkennst af aukaatriðum á borð við hvað nefskatturinn kostar nákvæmlega hverja meðalfjölskyldu og hvort RÚV eigi að sinna íþróttaumfjöllun eða ekki. Slíkar vangaveltur varða ekki kjarna málsins sem er einfaldlega sú spurning hvort það samræmist grundvallarmannréttindum að skylda fólk til áskriftar að einum tilteknum fjölmiðli án tillits til þess hvort fólk hafi áhuga eða ekki.Rök Ögmundar Jónassonar Sem dæmi um hve einkennileg þessi umræða getur orðið vil ég nefna þau rök sem Ögmundur Jónasson alþingismaður tefldi fram fyrir tilvist RÚV gegn Brynjari í þættinum Bítið á Bylgjunni fyrir skömmu. Ögmundur taldi að nauðsynlegt væri að ríkið ræki sjónvarpsstöð sem væri með aðrar áherslur en aðrar sjónvarpsstöðvar. Þessi rök ganga ekki upp því vitaskuld er hver útvarps- og sjónvarpsstöð með sjálfstæða dagskrá og eigin efnistök; ÍNN er með talsvert aðrar áherslur en hinar einkareknu sjónvarpsstöðvarnar, svo dæmi sé tekið. Dugar það til að setja ÍNN á spenann hjá ríkinu? Önnur rök sem Ögmundur notaði voru þau að þegar hann opnaði gufuna yfir páskana, þá sýndi gamla gufan hvað í henni býr, því þá sækir hún nefnilega efni frá gamalli tíð! Sem sagt, ef ég stofna fjölmiðil sem leggur áherslu á gamalt efni, á ég þá heimtingu á stuðningi frá ríkinu?Ummæli útvarpsstjóra Annað dæmi um vanhugsaða röksemd fyrir tilvist RÚV eru ummæli Páls Magnússonar útvarpsstjóra þess efnis að ef ekki væri fyrir RÚV, myndu Davíð Oddsson og Jón Ásgeir Jóhannesson skipta á milli sín fjölmiðlamarkaðinum – og slíkt myndi fólki ekki hugnast að mati Páls. Þetta er ekki röksemd heldur spá um eina af óteljandi sviðsmyndum sem hægt er að draga upp af fjölmiðlamarkaðnum ef RÚV nyti ekki við. Þá felst í orðum Páls þversögn því hverjir ráða því hvaða fjölmiðlar leiða fjölmiðlaflóruna hverju sinni? Svarið er einfalt: Neytendur. Hvorki Davíð né Jón Ásgeir geta aukið markaðshlutdeild sinna fjölmiðla að ráði án þess að hafa ánægða viðskiptavini með sér, a.m.k. ekki til lengra tíma litið. Varla getur það verið fólki þvert um geð sem það sjálft sem neytendur velur á frjálsum og síbreytilegum markaði eða hvað?Þarf að neyða fólk til viðskipta? Umræðan á fyrst og fremst að snúast um þá grundvallarspurningu hvort eðlilegt sé að fólk sé þvingað til viðskipta við einn fjölmiðil frekar en annan. Ef svarið er já, verður að krefja alla þá þingmenn, sem það telja, að styðja sín sjónarmið með skýrum, hnitmiðuðum og rökheldum hætti. Ef svarið er nei, þá ber að undirbúa sölu RÚV sem fyrst, helst á fyrri hluta þessa kjörtímabils. Þá mun raunverulegur vilji fólks, þ.e. neytenda, koma í ljós, t.d. hvort fjölmiðill á borð við RÚV gangi í endurnýjun lífdaga undir merkjum einkarekstrar eða deyja drottni sínum og aðrir fjölmiðlar fylla það skarð sem RÚV skildi eftir sig. Eitt er þó ljóst, vilji fólks, ekki stjórnmálaskörunga eða embættismanna, mun ráða för, svo meginþorri almennings mun hafa yfir litlu að kvarta í slíku fjölmiðlaumhverfi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Þið dirfist að kalla mig fasista og rasista? Davíð Bergmann Skoðun Opið bréf til Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra Anna Margrét Hrólfsdóttir,Lilja Guðmundsdóttir Skoðun Rödd barna og ungmenna hunsuð í barnvænu sveitarfélagi? París Anna Bermann Elvarsdóttir,Heimir Sigurpáll Árnason,Fríða Björg Tómasdóttir,Lilja Dögun Lúðvíksdóttir,Bjarki Orrason,Sigmundur Logi Þórðarson,Aldís Ósk Arnaldsdóttir,Leyla Ósk Jónsdóttir,Rebekka Rut Birgisdóttir,Ólöf Berglind Guðnadóttir,Íris Ósk Sverrisdóttir Skoðun Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Sá tapar sem fyrstur nefnir nasistana: gengisfelling orðsins „rasisti“ Birgir Finnsson Skoðun Myndir þú hætta að flokka ruslið? – Sjálfbærni er ekki tíska Helga Björg Steinþórsdóttir,Eva Magnúsdóttir Skoðun Ætla stjórnvöld virkilega að eyðileggja eftirlaunasjóði verkafólks endanlega? Vilhjálmur Birgisson Skoðun Hvenær kemur að okkur? Hjördís María Karlsdóttir Skoðun Frjór jarðvegur fyrir glæpagengi til að festa rætur Halldóra Mogensen Skoðun Ísland smíðar – köllum á hetjurnar okkar Einar Mikael Sverrisson Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra Anna Margrét Hrólfsdóttir,Lilja Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Réttlæti næst ekki með ranglæti Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Fagleg rök fjarverandi við opinbera styrkveitingu Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Ætla stjórnvöld virkilega að eyðileggja eftirlaunasjóði verkafólks endanlega? Vilhjálmur Birgisson skrifar Skoðun Heilbrigðistækni getur gjörbylt aðgengi og gæðum í heilbrigðisþjónustu Erla Tinna Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ísland smíðar – köllum á hetjurnar okkar Einar Mikael Sverrisson skrifar Skoðun Yfir 90% ferðamanna eru ánægðir með dvöl sína á höfuðborgarsvæðinu Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Hvenær kemur að okkur? Hjördís María Karlsdóttir skrifar Skoðun Frjór jarðvegur fyrir glæpagengi til að festa rætur Halldóra Mogensen skrifar Skoðun Án greiningar, engin ábyrgð Gísli Már Gíslason skrifar Skoðun Rödd barna og ungmenna hunsuð í barnvænu sveitarfélagi? París Anna Bermann Elvarsdóttir,Heimir Sigurpáll Árnason,Fríða Björg Tómasdóttir,Lilja Dögun Lúðvíksdóttir,Bjarki Orrason,Sigmundur Logi Þórðarson,Aldís Ósk Arnaldsdóttir,Leyla Ósk Jónsdóttir,Rebekka Rut Birgisdóttir,Ólöf Berglind Guðnadóttir,Íris Ósk Sverrisdóttir skrifar Skoðun Verkin sem ekki tala Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Myndir þú hætta að flokka ruslið? – Sjálfbærni er ekki tíska Helga Björg Steinþórsdóttir,Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Þið dirfist að kalla mig fasista og rasista? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Gleymdu að vanda sig Vanda Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Vindhögg Viðskiptaráðs Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Skref aftur á bak fyrir konur með endómetríósu Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Staða leikskólamála í Reykjanesbæ Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindaraðstoð: Kennarinn endurheimtir dýrmætan tíma Björgmundur Guðmundsson skrifar Skoðun Tökum höndum saman áður en það er of seint Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun PWC – Traustsins verðir? Björn Thorsteinsson skrifar Skoðun Rasismi útskýrir stuðning við þjóðarmorð Ingólfur Gíslason skrifar Skoðun Skuldin við jörðina: Kolefnisstjórnun skiptir sköpum Nótt Thorberg skrifar Skoðun Pólitískar kreddur á kostnað skattgreiðenda Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Þetta eru börnin sem ég hef áhyggjur af í skólakerfinu Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Óttumst við það að vera frjálsar manneskjur í frjálsu landi? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Loftslagsváin bíður ekki Ívar Kristinn Jasonarson skrifar Skoðun Hvers vegna að kenna leiklist? Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Jóna Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Jafnt aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu fyrir öll Telma Sigtryggsdóttir skrifar Skoðun Svikin loforð í leikskólamálum Reykjanesbæjar Gígja Sigríður Guðjónsdóttir skrifar Sjá meira
Fróðlegt hefur verið að fylgjast með skeleggri framgöngu Brynjars Níelssonar alþingismanns varðandi tilgang RÚV í nútímasamfélagi. Brynjar tekur stöðu með skattborgurum þessa lands og spyr hverju það sæti að enn sé verið að reka fjölmiðil á vegum ríkisins þegar tækniframfarir undanfarna áratugi hafa gert það að verkum að einkareknir fjölmiðlar og netið geta auðveldlega sinnt öllum þeim verkefnum sem ríkisútvarpinu einu var á sínum tíma ætlað að sinna.Karpað um aukatriði Þrátt fyrir viðleitni Brynjars til að halda mönnum við efnið hefur sú umræða sem átt hefur sér stað í fjölmiðlum að undanförnu um málefni RÚV því miður einkennst af aukaatriðum á borð við hvað nefskatturinn kostar nákvæmlega hverja meðalfjölskyldu og hvort RÚV eigi að sinna íþróttaumfjöllun eða ekki. Slíkar vangaveltur varða ekki kjarna málsins sem er einfaldlega sú spurning hvort það samræmist grundvallarmannréttindum að skylda fólk til áskriftar að einum tilteknum fjölmiðli án tillits til þess hvort fólk hafi áhuga eða ekki.Rök Ögmundar Jónassonar Sem dæmi um hve einkennileg þessi umræða getur orðið vil ég nefna þau rök sem Ögmundur Jónasson alþingismaður tefldi fram fyrir tilvist RÚV gegn Brynjari í þættinum Bítið á Bylgjunni fyrir skömmu. Ögmundur taldi að nauðsynlegt væri að ríkið ræki sjónvarpsstöð sem væri með aðrar áherslur en aðrar sjónvarpsstöðvar. Þessi rök ganga ekki upp því vitaskuld er hver útvarps- og sjónvarpsstöð með sjálfstæða dagskrá og eigin efnistök; ÍNN er með talsvert aðrar áherslur en hinar einkareknu sjónvarpsstöðvarnar, svo dæmi sé tekið. Dugar það til að setja ÍNN á spenann hjá ríkinu? Önnur rök sem Ögmundur notaði voru þau að þegar hann opnaði gufuna yfir páskana, þá sýndi gamla gufan hvað í henni býr, því þá sækir hún nefnilega efni frá gamalli tíð! Sem sagt, ef ég stofna fjölmiðil sem leggur áherslu á gamalt efni, á ég þá heimtingu á stuðningi frá ríkinu?Ummæli útvarpsstjóra Annað dæmi um vanhugsaða röksemd fyrir tilvist RÚV eru ummæli Páls Magnússonar útvarpsstjóra þess efnis að ef ekki væri fyrir RÚV, myndu Davíð Oddsson og Jón Ásgeir Jóhannesson skipta á milli sín fjölmiðlamarkaðinum – og slíkt myndi fólki ekki hugnast að mati Páls. Þetta er ekki röksemd heldur spá um eina af óteljandi sviðsmyndum sem hægt er að draga upp af fjölmiðlamarkaðnum ef RÚV nyti ekki við. Þá felst í orðum Páls þversögn því hverjir ráða því hvaða fjölmiðlar leiða fjölmiðlaflóruna hverju sinni? Svarið er einfalt: Neytendur. Hvorki Davíð né Jón Ásgeir geta aukið markaðshlutdeild sinna fjölmiðla að ráði án þess að hafa ánægða viðskiptavini með sér, a.m.k. ekki til lengra tíma litið. Varla getur það verið fólki þvert um geð sem það sjálft sem neytendur velur á frjálsum og síbreytilegum markaði eða hvað?Þarf að neyða fólk til viðskipta? Umræðan á fyrst og fremst að snúast um þá grundvallarspurningu hvort eðlilegt sé að fólk sé þvingað til viðskipta við einn fjölmiðil frekar en annan. Ef svarið er já, verður að krefja alla þá þingmenn, sem það telja, að styðja sín sjónarmið með skýrum, hnitmiðuðum og rökheldum hætti. Ef svarið er nei, þá ber að undirbúa sölu RÚV sem fyrst, helst á fyrri hluta þessa kjörtímabils. Þá mun raunverulegur vilji fólks, þ.e. neytenda, koma í ljós, t.d. hvort fjölmiðill á borð við RÚV gangi í endurnýjun lífdaga undir merkjum einkarekstrar eða deyja drottni sínum og aðrir fjölmiðlar fylla það skarð sem RÚV skildi eftir sig. Eitt er þó ljóst, vilji fólks, ekki stjórnmálaskörunga eða embættismanna, mun ráða för, svo meginþorri almennings mun hafa yfir litlu að kvarta í slíku fjölmiðlaumhverfi.
Opið bréf til Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra Anna Margrét Hrólfsdóttir,Lilja Guðmundsdóttir Skoðun
Rödd barna og ungmenna hunsuð í barnvænu sveitarfélagi? París Anna Bermann Elvarsdóttir,Heimir Sigurpáll Árnason,Fríða Björg Tómasdóttir,Lilja Dögun Lúðvíksdóttir,Bjarki Orrason,Sigmundur Logi Þórðarson,Aldís Ósk Arnaldsdóttir,Leyla Ósk Jónsdóttir,Rebekka Rut Birgisdóttir,Ólöf Berglind Guðnadóttir,Íris Ósk Sverrisdóttir Skoðun
Myndir þú hætta að flokka ruslið? – Sjálfbærni er ekki tíska Helga Björg Steinþórsdóttir,Eva Magnúsdóttir Skoðun
Ætla stjórnvöld virkilega að eyðileggja eftirlaunasjóði verkafólks endanlega? Vilhjálmur Birgisson Skoðun
Skoðun Opið bréf til Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra Anna Margrét Hrólfsdóttir,Lilja Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Ætla stjórnvöld virkilega að eyðileggja eftirlaunasjóði verkafólks endanlega? Vilhjálmur Birgisson skrifar
Skoðun Heilbrigðistækni getur gjörbylt aðgengi og gæðum í heilbrigðisþjónustu Erla Tinna Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Yfir 90% ferðamanna eru ánægðir með dvöl sína á höfuðborgarsvæðinu Inga Hlín Pálsdóttir skrifar
Skoðun Rödd barna og ungmenna hunsuð í barnvænu sveitarfélagi? París Anna Bermann Elvarsdóttir,Heimir Sigurpáll Árnason,Fríða Björg Tómasdóttir,Lilja Dögun Lúðvíksdóttir,Bjarki Orrason,Sigmundur Logi Þórðarson,Aldís Ósk Arnaldsdóttir,Leyla Ósk Jónsdóttir,Rebekka Rut Birgisdóttir,Ólöf Berglind Guðnadóttir,Íris Ósk Sverrisdóttir skrifar
Skoðun Myndir þú hætta að flokka ruslið? – Sjálfbærni er ekki tíska Helga Björg Steinþórsdóttir,Eva Magnúsdóttir skrifar
Opið bréf til Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra Anna Margrét Hrólfsdóttir,Lilja Guðmundsdóttir Skoðun
Rödd barna og ungmenna hunsuð í barnvænu sveitarfélagi? París Anna Bermann Elvarsdóttir,Heimir Sigurpáll Árnason,Fríða Björg Tómasdóttir,Lilja Dögun Lúðvíksdóttir,Bjarki Orrason,Sigmundur Logi Þórðarson,Aldís Ósk Arnaldsdóttir,Leyla Ósk Jónsdóttir,Rebekka Rut Birgisdóttir,Ólöf Berglind Guðnadóttir,Íris Ósk Sverrisdóttir Skoðun
Myndir þú hætta að flokka ruslið? – Sjálfbærni er ekki tíska Helga Björg Steinþórsdóttir,Eva Magnúsdóttir Skoðun
Ætla stjórnvöld virkilega að eyðileggja eftirlaunasjóði verkafólks endanlega? Vilhjálmur Birgisson Skoðun