Ósáttir við hjólabann í Ásbyrgi Garðar Örn Úlfarsson skrifar 27. júlí 2013 08:00 Georg Hilmarsson, félagi Arons Reynissonar, hjólar á stígnum við Hólmatungur milli Dettifoss og Hljóðakletta. Mynd/Aron Reynisson „
Það gengur ágætlega í Reykjavík að fólk hjóli gönguleiðir. Af hverju er ekki hægt að hjóla gönguleiðir í þjóðgörðum?“ spyr Aron Reynisson fjallaleiðsögumaður, ósáttur við takmarkanir á hjólreiðum í Ásbyrgi. Hjörleifur Finnsson þjóðgarðsvörður sagði í Fréttablaðinu í gær að bann við hjólreiðum á göngustígum væri ekki alltaf virt í Ásbyrgi. Aron var stöðvaður af landvörðum í síðustu viku á gönguleiðinni milli Hljóðakletta og Ásbyrgis. „Við sættum okkur ekki við að þurfa að snúa við,“ segir hann. Aron segist ekki fallast á rök þjóðgarðsvarðar um að göngustígarnir henti ekki til hjólreiða. „Það hefur aldrei orðið óhapp eða slys. Það er eiginlega undantekningalaust þannig að fólk á reiðhjólum stoppar og víkur fyrir þeim sem eru gangandi,“ segir hann. Á reiðleiðum sem hjólreiðamönnum sé beint á sé hins vegar hætta á árekstrum við reiðmenn. Þá sé reiðleiðin „hundleiðinleg“ því af henni sé ekkert útsýni. Aron segir merkingum við stígana afar ábótavant, auk þess sem landverðir gefi misvísandi upplýsingar. „Þar sem við förum inn á göngustíginn við Hafragilsfoss er merkt að við megum hjóla. Síðan er engin merking fyrr en við endum niðri í Ásbyrgi um það að við megum ekki hjóla.“
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Fleiri fréttir Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sjá meira