Viðskipti innlent

Veikur fjármálamarkaður dregur úr samkeppnishæfni Íslands

Haraldur Guðmundsson skrifar
Sömu þættirnir og áður draga úr samkeppnishæfnii og getu landsins, þrálátur veikleiki efnahagsumhverfisins og veikur fjármálamarkaður.
Sömu þættirnir og áður draga úr samkeppnishæfnii og getu landsins, þrálátur veikleiki efnahagsumhverfisins og veikur fjármálamarkaður.
Ísland fellur um eitt sæti frá árinu 2012 í mælingum Alþjóðaefnahagsráðsins á samkeppnishæfni þjóða. Ísland vermir nú 31. sætið og hefur síðustu þrjú ár horft fram á litlar breytingar á milli ára og verið í hópi landa eins og Kína, Eistlands og Púerto Ríkó. Í september 2008 vermdi Ísland 20. sætið en féll um sex sæti í framhaldinu og hefur ekki enn náð fyrri stöðu hvað samkeppnishæfni varðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands sem aflar gagna fyrir Alþjóðaefnahagsráðið.

Þar segir að það séu enn sömu þættirnir sem dragi úr samkeppnishæfnii og getu landsins, þrálátur veikleiki efnahagsumhverfisins og veikur fjármálamarkaður.

Alþjóðaefnahagsráðið telur þó einnig upp nokkra mikilvæga samkeppnisþætti sem Ísland hefur hagnast af og hjálpa landinu að færast nær velgengni í efnahagslífinu og aukinni sjálfbærni.

„Hér er um að ræða þætti eins og stöðu heilbrigðismála og menntunar á öllum stigum og viðskiptalíf sem drifið er áfram af nýsköpun og áherslu á nýja tækni sem eykur framleiðni á mörgum sviðum. Það hversu sveigjanlegur vinnumarkaðurinn á Íslandi er hefur einnig mikil áhrif á virkni markaðarins,“ segir í tilkynningu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Samkvæmt mælingum Alþjóðefnahagsráðsins er Sviss fremst þegar kemur að samkeppnishæfni þjóða. Þar á eftir koma Singapore, Finnland, Þýskaland og Bandaríkin. 

„Bandaríkin halda áfram að vera leiðandi í framleiðslu og markaðssetningu á nýskapandi vörum og þjónustu og má rekja jákvæðan viðsnúning þeirra til bættrar stöðu á fjármálamörkuðum og sterkari tiltrúar á opinberar stofnanir landsins. Hins vegar eru uppi ákveðnar áhyggjur af efnahagslegum stöðugleika þjóðarinnar en þar lenda Bandaríkin í 117 sæti af 148 mögulegum. Í Evrópu hefur mikil áhersla verið lögð á að bregðast við skuldasöfnun almennings og forðast upplausn Evrunnar og það á kostnað þátta sem hafa mikið með samkeppnishæfni þjóðanna að gera. Þannig þurfa lönd eins og Spánn, Ítalía, Portúgal og ekki síst Grikkland að halda áfram að takast á við mikla veikleika heima fyrir ekki síst hvað varðar virkni og afköst heimamarkaða, eflingu nýsköpunar og bætt aðgengi að fjármögnun,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×