Leið hvergi verr en á Íslandi 30. maí 2012 14:30 Í blaðinu eru ævintýralegar myndir sem ljósmyndarinn Saga Sig tók af Leoncie.
Söngkonan Leoncie prýðir forsíðu nýjasta tölublaðs Nýs lífs, sem kemur út á morgun. Nýtt líf heimsótti söngkonuna í bænum Leigh on Sea, í austurhluta London, þar sem hún hefur verið búsett undanfarin ár. „Leoncie segir frá upprunanum, trúnni og syninum sem var rænt. Hún hóf tónlistarferilinn á kirkjuorgeli á Indlandi aðeins fimm ára gömul. Hún menntaði sig í klassískri tónlist í London og ferðaðist um heiminn þveran og endilangan. Hvergi leið henni verr en á Íslandi og minningarnar af hrottalegu einelti ræna hana enn nætursvefninum," segir í umfjöllun Nýs lífs. Leoncie bjó á Íslandi í tæpa þrjá áratugi, í Kópavogi og Sandgerði, og segist hún í viðtalinu eiga margar sárar minningar frá þeim tíma. „Afbrýðisemi, fáfræði og fordómar mættu mér alls staðar. Það var svo erfitt að eignast vini. Líklega hefði ég þurft að vera nákvæmlega eins og allir aðrir til að falla inn í hópinn. Ég var útilokuð frá öllu og mér leið hræðilega. Ekki hjálpaði það til að ég er fagmaður í tónlist. Það sem fimm hálfvitar í hljómsveit gera, lærði ég að gera ein og óstudd."Forsíða blaðsins.Þá segir hún frá mörgum tilraunum sem hún gerði til að eignast vini og hvernig hún var dugleg að bjóða til sín gestum. „Ég er mikill kokkur og elska að elda alvöru indverskan mat. Stundum bauð ég til mín tuttugu, þrjátíu manns í mat og allir skemmtu sér vel. Meira að segja Linda Pé og þáverandi kærastinn hennar komu til mín. En svo heyrði ég aldrei frá neinum aftur og aldrei fékk ég heimboð."
Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Fleiri fréttir Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Sjá meira