Innlent

Leið hvergi verr en á Íslandi

Í blaðinu eru ævintýralegar myndir sem ljósmyndarinn Saga Sig tók af Leoncie.
Í blaðinu eru ævintýralegar myndir sem ljósmyndarinn Saga Sig tók af Leoncie.
Söngkonan Leoncie prýðir forsíðu nýjasta tölublaðs Nýs lífs, sem kemur út á morgun. Nýtt líf heimsótti söngkonuna í bænum Leigh on Sea, í austurhluta London, þar sem hún hefur verið búsett undanfarin ár.

„Leoncie segir frá upprunanum, trúnni og syninum sem var rænt. Hún hóf tónlistarferilinn á kirkjuorgeli á Indlandi aðeins fimm ára gömul. Hún menntaði sig í klassískri tónlist í London og ferðaðist um heiminn þveran og endilangan. Hvergi leið henni verr en á Íslandi og minningarnar af hrottalegu einelti ræna hana enn nætursvefninum," segir í umfjöllun Nýs lífs.

Leoncie bjó á Íslandi í tæpa þrjá áratugi, í Kópavogi og Sandgerði, og segist hún í viðtalinu eiga margar sárar minningar frá þeim tíma.

„Afbrýðisemi, fáfræði og fordómar mættu mér alls staðar. Það var svo erfitt að eignast vini. Líklega hefði ég þurft að vera nákvæmlega eins og allir aðrir til að falla inn í hópinn. Ég var útilokuð frá öllu og mér leið hræðilega. Ekki hjálpaði það til að ég er fagmaður í tónlist. Það sem fimm hálfvitar í hljómsveit gera, lærði ég að gera ein og óstudd."

Forsíða blaðsins.
Þá segir hún frá mörgum tilraunum sem hún gerði til að eignast vini og hvernig hún var dugleg að bjóða til sín gestum.

„Ég er mikill kokkur og elska að elda alvöru indverskan mat. Stundum bauð ég til mín tuttugu, þrjátíu manns í mat og allir skemmtu sér vel. Meira að segja Linda Pé og þáverandi kærastinn hennar komu til mín. En svo heyrði ég aldrei frá neinum aftur og aldrei fékk ég heimboð."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×